Maðurinn sem fannst látinn í hlíðum Kistufells á Esjunni síðdegis í gær hét Viktor Arman Kambizson. Hann var 22 ára.
Hrönn Harðardóttir, móðir Viktors, staðfestir þetta í samtali við mbl.is en hún minnist sonar síns í færslu á Facebook.
Þakkar Hrönn öllum þeim sem komu að leit sonar síns.
„Við færum björgunarsveitarfólki sem leitaði tímunum saman og langt fram á nótt okkar bestu þakkir. Sem og áhöfn þyrlunnar sem fann drenginn minn. Og lögreglunni sem hélt utan um okkur og gaf reglulega upplýsingar um stöðu mála. Og þeim sem komu heim til okkar og tilkynntu andlátið. Fyrir nærgætni og hlýju. Góður drengur er fallinn frá, allt of snemma. Elsku Viktor minn, hvíldu í friði,“ skrifar hún.