Nýtt heilaörvunartæki væntanlegt

Sjúkrahúsið á Akureyri mun innleiða heilaörvunarmeðferð á næstunni.
Sjúkrahúsið á Akureyri mun innleiða heilaörvunarmeðferð á næstunni. mbl.is/Skapti Hallgrímsson

Alma D. Möller heil­brigðisráðherra hef­ur tryggt fjár­magn sem ger­ir Sjúkra­hús­inu á Ak­ur­eyri kleift að inn­leiða heila­örvun­ar­meðferð fyr­ir ein­stak­linga sem greinst hafa með meðferðarþrátt þung­lyndi.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu á vef Stjórn­ar­ráðsins

Heila­örvun­ar­meðferð hef­ur ein­ung­is verið veitt í Heila­örvun­ar­miðstöð Heilsu­gæslu höfuðborg­ar­svæðis­ins en sú meðferð hef­ur verið í boði síðan árið 2022.

Meðferðin krefst þess að ein­stak­ling­ar mæti alla daga vik­unn­ar í fjór­ar til sex vik­ur og því afar mik­il­vægt að boðið sé upp á slíka meðferð ann­ars staðar en á höfuðborg­ar­svæðinu.

Fimm til tíu pró­sent lands­manna glíma við þung­lyndi

Talið er að um fimm til tíu pró­sent lands­manna glími við þung­lyndi og ná um tveir þriðju bata með hjálp lyfja og sál­fræðiaðstoðar. Um þriðjung­ur nær ekki bata og þróar með sér meðferðarþrátt þung­lyndi.

Áætlað er að um 240 ein­stak­ling­ar muni nýta sér slíka meðferð ár­lega. Rann­sókn­ir sýna að meðferðin skil­ar mikl­um ár­angri fyr­ir þá sem hafa lítið gagn af hefðbund­inni lyfjameðferð eða hug­rænni at­ferl­is­meðferð.

Mik­il­væg­ur liður í að bæta geðheil­brigðisþjón­ustu á landsvísu

Haft er eft­ir Ölmu í til­kynn­ing­unni að inn­leiðing heila­örvun­ar­meðferðar sé afar mik­il­væg­ur liður í því að bæta aðgengi að sér­hæfðri geðheil­brigðisþjón­ustu á landsvísu.

„Síðast en ekki síst er ár­ang­urs­rík og tím­an­leg meðferð við þung­lyndi mik­il­vægt lýðheilsu­mál, stuðlar að bætt­um lífs­gæðum fólks og er mik­il­væg for­vörn gegn sjálfs­víg­um.“ er haft eft­ir Ölmu í til­kynn­ingu ráðuneyt­is­ins.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert