Sauðfé drapst í slæmu júníhreti

Sauðfé drapst á Norður- og Austurlandi í júníhretinu sem gekk …
Sauðfé drapst á Norður- og Austurlandi í júníhretinu sem gekk yfir í byrjun júní. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Eitt­hvað var um að sauðfé dræp­ist vegna veðurs á Norður- og Aust­ur­landi í júní­hret­inu sem gekk yfir landið í byrj­un mánaðar.

Þetta seg­ir Eyj­ólf­ur Ingi Bjarna­son, formaður deild­ar sauðfjár­bænda inn­an Bænda­sam­taka Íslands. 

Hann seg­ir það hafa verið ofboðslega slæmt að fá kulda­hret ofan í blíðuna sem var í maí. Mjög marg­ir bænd­ur hafi hýst sauðféð, þar sem það þolir kuld­ann illa, en svona löng inn­istaða geri dýr­un­um þó ekki gott.

Eyj­ólf­ur seg­ir að marg­ir bænd­ur hafi hleypt dýr­un­um fyrst út á mánu­dag­inn og að sum­ir muni ekki gera það fyrr en næstu daga. Dýr­in hafa því verið inni í um viku, sem telst lang­ur tími. 

Slæm­ar aðstæður mynduðust í hret­inu, sem færðist yfir Norður- og Aust­ur­land í byrj­un mánaðar, þar sem björg­un­ar­sveita­menn þurftu að aðstoða bænd­ur við að bjarga sauðfé sem hafði verið sett út.

„Þetta ýfði upp slæm­ar minn­ing­ar“

„Staðbundið var veðrið verra en spá­in sagði til um og ástandið verra en í fyrra þó svo að heild­ar­um­fang júní­hrets­ins hafi verið minna í ár en í fyrra,“ seg­ir Eyj­ólf­ur.

Þetta hafi ekki verið það sem menn þurftu eft­ir síðasta ár, þegar veður var slæmt og kalt. „Þetta ýfði upp slæm­ar minn­ing­ar“.

Hann seg­ir að þetta hret hafi haft víðtæk­ari áhrif vegna hita­bylgj­unn­ar sem var í maí, þar sem gróður var kom­inn snemma af stað og sauðféð dreift sér víðar vegna þess.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert