„Þetta þarf að hafa einhverjar afleiðingar“

Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna.
Fjölnir Sæmundsson, formaður Landssambands lögreglumanna. mbl.is/Sigurður Bogi

Fjöln­ir Sæ­munds­son, formaður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, seg­ist hafa þung­ar áhyggj­ur af starfs­um­hverfi lög­reglu­manna á land­inu. Þá grun­ar hann að menn­irn­ir sem hótuðu lög­reglu­manni á heim­ili hans hafi verið hag­nýtt­ir af öðrum.

Greint hef­ur verið frá því að fjór­ir menn hafi verið hand­tekn­ir aðfaranótt mánu­dags eft­ir að hafa mætt heim til lög­reglu­manns í Reykja­vík vopnaðir hníf­um.

Í sam­tali við mbl.is seg­ir Fjöln­ir að málið sé í raun ekki eins­dæmi, þótt ekki hafi áður heyrst að menn mæti vopnaðir heim til lög­reglu­manns. Hann vís­ar t.a.m. til þess þegar kveikt var í bíl lög­reglu­manns fyr­ir utan heim­ili hans.

Hann nefn­ir einnig dæmi frá Suður­nesj­um, þar sem mann­eskja var ít­rekað að fara heim til lög­reglu­manna og valda skemmd­um á bíl­um þeirra, sem og lög­reglu­bíl­um.

Fjöl­skyld­ur lög­reglu­manna og ná­grann­ar í hættu

„Það sem við í lands­sam­band­inu og lög­reglu­menn al­mennt erum ósátt við er að það sé ekki ákært fyr­ir 106. grein hegn­ing­ar­laga, þ.e. árás á op­in­ber­an starfs­mann, held­ur að það sé bara verið að ákæra fyr­ir skemmd­ar­verk,“ seg­ir Fjöln­ir.

Hann seg­ir málið einnig al­var­legt að því leyti að lög­reglumaður­inn búi í fjöl­býl­is­húsi. Því sé í raun verið að leggja fullt af fólki í hættu.

„Það eru ekki bara lög­reglu­menn sem eru í hættu held­ur þá kannski fyrst og fremst fjöl­skyld­ur þeirra og ná­grann­ar. Þannig við lít­um á þetta mjög al­var­leg­um aug­um í stjórn sam­bands­ins og höf­um þung­ar áhyggj­ur af þessu starfs­um­hverfi.“

Verða einnig fyr­ir árás­um á sam­fé­lags­miðlum

Þá seg­ist Fjöln­ir einnig hafa áhyggj­ur af því hve marg­ir lög­reglu­menn séu ekki skráðir með lög­heim­ili í Þjóðskrá. Stór ástæða fyr­ir því sé að þeir séu að reyna að fela sig.

„Það býr til alls kon­ar vand­ræði fyr­ir þá að vera ekki með skráð lög­heim­ili, bara t.d. í sam­skipt­um við kerfið.“

Jafn­framt nefn­ir hann að lög­reglu­mönn­um sé gjarn­an ráðlagt að vera ekki of mikið á sam­fé­lags­miðlum en hann seg­ir það reglu­lega ger­ast að ein­hver birti þar mynd af lög­reglu­manni og níði hann niður.

„Við túlk­um þetta auðvitað líka sem árás­ir á þá og ég hvet þá alltaf til að kæra til Héraðssak­sókn­ara ef þeir verða fyr­ir árás á sam­fé­lags­miðlum. Það er verið að vega að æru þeirra.“

Mynstur farið að sjást á Norður­lönd­um

„Ég hef nú líka áhyggj­ur af því að lög­reglu­starfið sé að breyt­ast og þá hef­ur maður áhyggj­ur af því í leiðinni að fólk sæk­ist ekki eft­ir því að verða lög­reglu­menn og snúi sér frek­ar að ein­hverju öðru,“ seg­ir Fjöln­ir og nefn­ir að það mynstur hafi verið rætt á milli formanna nor­rænu lög­reglu­fé­lag­anna þegar þeir hitt­ast.

„Sví­arn­ir hafa haft mikl­ar áhyggj­ur af þessu hjá sér, að færri og færri vilji starfa sem lög­reglu­menn – sér­stak­lega í þess­um stór­borg­um.“

Það er mynstur seð er að sjást?

„Já, það er mynstur sem sést á Norður­lönd­un­um.“

Og þá hér heima vænt­an­lega líka?

„Maður hef­ur verið að reyna að greina þetta hér. Mér fannst um­sókn­ir detta aðeins niður en svo juk­ust þær aft­ur, þannig að við vit­um þetta ekki al­veg, kannski enn þá. Það tek­ur auðvitað smá tíma að sjá eitt­hvað mynstur. En maður ótt­ast það,“ seg­ir Fjöln­ir og bæt­ir við:

„Svo hef­ur maður auðvitað líka áhyggj­ur af því að fjöl­skyldu­fólk bara hætti störf­um í lög­regl­unni, að þau vilji ekki leggja þetta á sína fjöl­skyldu.“

Fé­lags­lega veik ung­menni sem auðvelt er að nota

Greint hef­ur verið frá því að menn­irn­ir sem mættu heim til lög­reglu­manns­ins séu all­ir und­ir tví­tugu og að sá yngsti sé aðeins 15 ára gam­all. Heim­ild­ir frétta­stofu Rík­is­út­varps­ins herma að hóp­ur­inn sé tengd­ur brota­manni sem lög­reglumaður­inn hafði stöðvað tvisvar sinn­um við um­ferðareft­ir­lit. Þess ber þó að geta að umræða hef­ur verið um að börn séu hag­nýtt af glæpa­hóp­um til að fremja af­brot.

Aðspurður hvort mögu­lega sé um þannig mál að ræða seg­ist Fjöln­ir gruna það.

„Þar erum við bara með þetta vanda­mál að það eru ein­hverj­ir sem eru fé­lags­lega veik­ir í sam­fé­lag­inu sem er auðvelt að nota.“

Hann seg­ir það mynstur einnig hafa sést á Norður­lönd­um, þ.e. að skipu­lögð glæpa­sam­tök eða fólk í glæp­um not­færi sér ungt, viðkvæmt fólk til að fremja af­brot og komi þannig í veg fyr­ir að vera sjálft á staðnum.

Verður að taka hart á þessu

Að lok­um tek­ur Fjöln­ir fram að ákall lands­sam­bands­ins og lög­reglu­manna sé að þeir sem ógna og hóta lög­reglu­mönn­um og skemma eig­ur þeirra skuli kærðir fyr­ir árás á op­in­bera starfs­menn.

„Ég held að svona stoppi ekki nema það sé tekið hart á þessu og að ein­stak­ling­ar verði dæmd­ir fyr­ir þess­ar árás­ir. Þetta þarf að hafa ein­hverj­ar af­leiðing­ar.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert