„Þetta yrði mikil afturför á markaðnum og til þess fallið að draga úr þægindum og valfrelsi neytenda,“ segir María Björk Einarsdóttir forstjóri Símans um útspil Sýnar hf. frá síðustu mánaðamótum.
Í markpósti frá Sýn segir að í lok sumars verði ekki lengur hægt að horfa á sjónvarpsefni félagsins öðruvísi en í gegnum myndlykla eða smáforrit Sýnar, sem enn er í smíðum. Þar undir eru m.a. fréttir og enski boltinn.
„Það er ótvírætt að þessi tilraun stenst ekki lög. Fjölmiðlafyrirtækjum eins og Sýn hf. er skylt að miðla sjónvarpsútsendingum til fjarskiptafyrirtækja,“ segir María Björk. Það sé grundvallaratriði í fjölmiðlalögum.
„Málið snýst hins vegar ekki síður um þá eðlilegu kröfu neytenda að geta nálgast sjónvarpsútsendingar hvar sem þeim hentar,“ segir María Björk.
„Að svipta þúsundir heimila þessum aðgangi, nema þá aðeins að þau komi í enn meiri viðskipti við Sýn, er þvert á eðlilega þróun á þessum markaði.“
María Björk segir að rannsóknir sýni að greiðara aðgengi að efni dragi úr notkun ólöglegra streymisveitna, en notkun þeirra bitni fyrst og fremst á þeim sem hafa atvinnu af framleiðslu sjónvarpsefnis. Þetta sé tvímælalaust skref í ranga átt í því sambandi.
Hún segir málið komið til viðeigandi eftirlitsaðila og telur hún ljóst að þar muni tilraunir Sýnar tæplega hljóta blessun.
„Við höfum fengið fjölda símtala frá óánægðum viðskiptavinum Sýnar, sem finnst þeim stillt upp við vegg. Okkar skilaboð eru skýr, við ætlum að sjálfsögðu að gera allt sem í okkar valdi stendur til að tryggja áframhaldandi aðgang að útsendingunum. En þessar tilraunir eru óheppilegar og til þess fallnar að rugla neytendur í ríminu,“ segir María Björk að lokum.