Bekkir tileinkaðir Bryndísi Klöru Birgisdóttur munu prýða götur Kópavogs. Bekkur við Salalaug í Kópavogi var afhjúpaður á þriðjudaginn og er hann til minningar um Bryndísi Klöru.
Foreldrar Bryndísar, Birgir Karl Óskarsson og Iðunn Eiríksdóttir, afhjúpuðu bekkinn ásamt Vigdísi, systur Bryndísar Klöru. Bryndís Klara lést af sárum sínum í ágúst síðastliðnum eftir að hafa orðið fyrir stunguárás á Menningarnótt.
„Okkur þykir mjög vænt um að Bryndísar Klöru sé minnst í sínum heimabæ með þessum fallega hætti. Við vonumst til þess að bekkirnir minni fólk á mikilvægi þess að samfélag þar sem samkennd og samvinna eru í forgrunni er það samfélag sem þarf að efla og styðja,“ er haft eftir foreldrum Bryndísar í tilkynningu frá Kópavogsbæ.
Tuttugu bekkir verða reistir í sveitarfélaginu en Steinar Guðmundsson á frumkvæðið að verkefninu. Hann setti fram hugmyndina um Bryndísarbekki í hugmyndastöfnun verkefnisins Okkar Kópavogur. Hugmyndin hlaut mikinn stuðning Kópavogsbúa.
Steinar var viðstaddur þegar bekkurinn var afhjúpaður ásamt Ásdísi Kristjánsdóttur bæjarstjóra Kópavogs og Friðriki Baldurssyni garðyrkjustjóra, en hann hefur séð um verkefnið fyrir hönd bæjarins.
Bryndísarbekkirnir eru í einkennislit Bryndísar Klöru, bleikum, og á þeim er skilti sem á stendur: Bryndísarbekkur. Látum kærleikann sigra, Bryndís Klara Birgisdóttir 2007-2024.
Í sumar verður komið upp bekkjum við alla grunnskóla bæjarins og íþróttahús. Staðirnir eru valdir með það í huga að bekkirnir séu sýnilegir börnum og ungmennum.
Minningarsjóður Bryndísar Klöru leggur áherslu á að veita styrki til fræðslu, rannsókna og verkefna til að koma í veg fyrir að hörmulegir atburðir á borð við andlát Bryndísar Klöru endurtaki sig.
Nánari upplýsingar um sjóðinn og hvernig má leggja honum lið er að finna á vef sjóðsins mbk.is