Heimir: Eftirsjá að Stöð 2

Heimir
Heimir mbl.is/Kristinn Magnússon

„Það verður sárt að horfa á eft­ir „Stöð 2“ nafn­inu og lógó­inu, þó efnið verði áfram á sín­um stað,“ seg­ir fjöl­miðlamaður­inn Heim­ir Karls­son í kjöl­far þess að Sýn til­kynnti ákvörðun sína um að hætta að nota nafnið Stöð 2. 

Í færslu á Face­book seg­ir Heim­ir stöðina eiga stór­an sess í sínu hjarta. Hann var ráðinn árið 1985 sem fyrsti og jafn­framt eini íþróttaf­réttamaður Stöðvar 2. Þá var Heim­ir 25 ára en tæp­lega 40 ár eru liðin síðan. 

Því verði „sárt og súrt að horfa á eft­ir Stöð 2, en ekk­ert var­ir enda­laust,“ skrif­ar hann.

Kynnt­ist eig­in­konu sinni hjá Stöð 2

Bylgj­an mun þó halda nafni sínu ólíkt Stöð 2 sem fær að fjúka, en sjón­varps­efni Sýn­ar verður nú al­farið und­ir merkj­um Sýn­ar.

Heim­ir kveðst vera þakk­lát­ur fyr­ir sinn tíma á Stöð 2. Þar hafi hon­um vegnað vel í starfi en einnig í ástar­mál­um, því þar kynnt­ist Heim­ir eig­in­konu sinni, Rúnu Guðmunds­dótt­ur. 

Hann seg­ist skilja rök stjórn­enda Sýn­ar en tek­ur fram að hann muni aldrei gleyma Stöð 2, ekki frek­ar en „tug­ir þúsunda lands­manna.“



mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert