Íris Þórarinsdóttir hefur tekið við stöðu sviðstjóra samgangna og skipulags hjá VSB verkfræðistofu. Í tilkynningu frá VSB verkfræðistofu segir að Íris muni styrkja stöðu VSB á sviði samgangna og skipulags með áherslu á sjálfbærni, framtíðarsýn og faglega nálgun.
Íris starfaði áður hjá Reitum fasteignafélagi en þar starfaði hún sem sérfræðingur í sjálfbærni ásamt því að vera verkefnastjóri í þróunarverkefnum. Þar á undan starfaði hún hjá Veitum, meðal annars við uppbyggingu og þróun fráveitukerfa.
Íris lauk B.S.-gráðu í umhverfis- og byggingarverkfræði við Háskóla Íslands árið 2000. Árið 2004 lauk Íris meistaragráðu í umhverfisverkfræði frá Danmarks Tekniske Universitet (DTU) Íris er með víðtæka reynslu af verkefnastjórnun og stefnumótun á sviði sjálfbærni, skipulags og innviðaþróunar.
Íris er gift Gísla Þórmari Snæbjörnssyni verkfræðingi og eiga þau saman fjögur börn.
VSB verkfræðistofa var stofnuð árið 1987 og er með aðsetur í Hafnarfirði. Fyrirtækið veitir fjölbreytta verkfræði- og ráðgjafarþjónustu. Svið samgangna og skipulags sinnir greiningum, stefnumótun, hönnun samgöngukerfa, gerð samgöngumats, umferðar- og bílastæðatalningum, valkostagreiningum ásamt almennri skipulagsráðgjöf.