„Ísland gaf okkur mjög mikið“

Video Player is loading.
Current Time 0:00
Duration 0:00
Loaded: 0%
Stream Type LIVE
Remaining Time 0:00
 
1x
  • Chapters
  • descriptions off, selected
  • subtitles off, selected
    • Quality

    „Þeir leyfðu okk­ur að vera eins og hluti af sam­fé­lag­inu,“ seg­ir Di­ana Al Barouki um þær mót­tök­ur sem hún, Dana Za­her El Deen og Ngan Kieu Tran, fengu frá Íslend­ing­um er þær komu hingað til lands árið 2022. 

    Ngan kom frá Víet­nam og Di­ana og Dana frá Sýr­landi. Þær kynnt­ust svo all­ar í Fjöl­brauta­skól­an­um við Ármúla og út­skrifuðust þaðan ný­verið með glæsi­brag; Ngan sem dúx skól­ans, Di­ana sem semídúx og Dana með meðal­ein­kunn­ina 9,18. 

    Þá hlutu þær all­ar viður­kenn­ing­ar fyr­ir náms­ár­ang­ur í hinum ýmsu fög­um.

    Vilja gefa til baka

    Í þætti Dag­mála fara þær yfir hvernig tekið var á móti þeim er þær komu hingað til lands. 

    „All­ir Íslend­ing­ar hjálpuðu okk­ur mjög mikið og við feng­um mjög góðar mót­tök­ur,“ seg­ir Dana og tek­ur jafn­framt fram að þær séu mjög þakk­lát­ar. Þá segj­ast þær vilja gefa af sér til sam­fé­lags­ins. 

    „Af því að Ísland gaf okk­ur mjög mikið,“ seg­ir Di­ana. 

    Þátt­inn má sjá í heild sinni hér að neðan:

    Lærðu ís­lensku og dúxuðu mennta­skól­ann

    mbl.is
    Fleira áhugavert
    Fleira áhugavert