Kafað í fjármál flokksins

Karl Héðinn Kristjánsson segir Gunnar Smára Egilsson, fyrrverandi formann framkvæmdastjórnar, …
Karl Héðinn Kristjánsson segir Gunnar Smára Egilsson, fyrrverandi formann framkvæmdastjórnar, hafa verið ófúsan til þess að afhenda skrifleg gögn um lánveitingu Sósíalistaflokksins til Samstöðvarinnar, sem nemur tugum milljóna frá árinu 2022. Samsett mynd/mbl.is/Eggert

Ný­kjör­in stjórn Sósí­al­ista­flokks­ins kann­ar um þess­ar mund­ir fjár­mál flokks­ins frá tíð fyrri stjórn­ar og þá ekki síst fjár­veit­ing­ar hans til óskyldra fé­laga á und­an­förn­um árum, sem nema tug­um millj­óna.

Op­in­ber­ir styrk­ir til Sósí­al­ista­flokks­ins, ætlaðir starf­semi stjórn­mála­sam­taka, hafa und­an­far­in ár runnið að hálfu til Alþýðufé­lags­ins og Sam­stöðvar­inn­ar og að hálfu til Vor­stjörn­unn­ar.

„Við sem erum ný­kjör­in inn í stjórn flokks­ins höf­um verið í stjórn­um flokks­ins og grasrót lengi og höf­um verið að biðja um skrif­lega samn­inga á milli flokks­ins og Alþýðufé­lags­ins eða Sam­stöðvar­inn­ar, eða jafn­vel bara samþykkt­ir í fund­ar­gerðum, en við höf­um ekk­ert fengið,“ seg­ir Karl Héðinn Kristjáns­son sem leiddi hall­ar­bylt­ingu í flokkn­um á síðasta aðal­fundi og sit­ur nú í fram­kvæmda­stjórn hans.

Koma öllu upp á borð

Hann seg­ir Gunn­ar Smára Eg­ils­son, fyrr­ver­andi formann fram­kvæmda­stjórn­ar, hafa verið ófús­an til þess að af­henda skrif­leg gögn um lán­veit­ingu Sósí­al­ista­flokks­ins til Sam­stöðvar­inn­ar, sem nem­ur tug­um millj­óna frá ár­inu 2022.

„Þetta er loðið. Þegar þú inn­ir hann eft­ir skrif­legri samþykkt fyr­ir þess­ari lán­veit­ingu þá er hún ekki til, svo við höf­um séð,“ seg­ir hann.

Karl Héðinn seg­ir þetta vera stór­an þátt í því að hall­ar­bylt­ing­ar­menn sáu sér ekki annað fært en að koma nýrri stjórn að. Í kjöl­far stjórn­ar­skipta muni Sósí­al­ista­flokk­ur­inn segja skilið við Vor­stjörn­una og end­ur­skoða sam­band sitt við Sam­stöðina og koma því í form­legra horf.

„Við erum núna að kafa í fjár­mál flokks­ins til þess að koma öllu upp á borð og skýra málið,“ seg­ir hann.

Gunn­ar Smári vís­ar ásök­un­um Karls Héðins á bug. „Ég vissi ekki að Karl Héðinn væri að reyna að fá frá mér gögn, skrítið að hann seg­ist reyna það án þess að ég verði þess var. Öll fjár­hags­leg gögn eiga að liggja hjá gjald­kera fram­kvæmda­stjórn­ar,“ seg­ir hann. Ráðstöf­un­in hafi verið samþykkt af fé­lags­mönn­um með samþykki árs­reikn­inga und­an­geng­inna ára.

Lesa má nán­ar um málið á bls. 36 í Morg­un­blaðinu og í Mogga-app­inu í dag.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert