Lögreglan mun ekki bogna: „Mjög alvarlegt“

Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu.
Ásgeir Þór Ásgeirsson, aðstoðarlögreglustjóri lögreglunnar á höfuðborgarsvæðinu. mbl.is/Sigurður Bogi

Ásgeir Þór Ásgeirs­son, aðstoðarlög­reglu­stjóri lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu, seg­ir lög­in mögu­lega ekki vernda lög­reglu­menn nægi­lega mikið. Þá sé það grafal­var­legt ef sá grun­ur reyn­ist rétt­ur að þekkt­ir brota­menn noti ung­menni til þess að vinna verk sín.

Umræða hef­ur mynd­ast um starfs­um­hverfi lög­reglu­manna í kjöl­far þess að fjór­ir menn mættu heim til lög­reglu­manns í Reykja­vík síðustu helgi, vopnaðir hníf­um.

Einnig hef­ur verið fjallað um í fjöl­miðlum um önn­ur mál þar sem með ákveðnum hætti var veist að lög­reglu­mönn­um. Ann­ars veg­ar þegar kveikt var í bíl eins lög­reglu­manns og hins veg­ar þegar skemmd­ir voru unn­ar á bíl ann­ars.

Ákveðin stig­mögn­un

Í sam­tali við mbl.is seg­ist Ásgeir telja að um ákveðna stig­mögn­un sé að ræða í slík­um mál­um.

„Það er mjög al­var­legt ef að sá grun­ur sem hef­ur verið sett­ur fram er rétt­ur, að þekkt­ir brota­menn séu að fá unga – mögu­lega upp­renn­andi – af­brota­menn eða jafn­vel ung­menni sem eru ekki með neina sögu til þess að vinna fyr­ir sig skíta­verk,“ seg­ir Ásgeir.

Hann seg­ir lög­regl­una hafa varað við því að aðferðir sem þess­ar myndu koma til lands­ins, þar sem þeim hafi verið beitt í Svíþjóð um ára­bil.

„Það hafa verið flutt­ar mjög marg­ar frétt­ir af því þar sem ung­ir af­brota­menn hafa verið fengn­ir til þess að vinna verk fyr­ir aðra gegn gjaldi eða greiða eða bara und­ir hót­un­um.“

Þá seg­ir Ásgeir að þrjú mál sem fjallað hef­ur verið um í fjöl­miðlum, þar sem veist er að lög­reglu­mönn­um, séu öll „mögu­lega þannig fram­kvæmd“ að fengn­ir séu ein­stak­ling­ar til þess að vinna verk­in fyr­ir aðra.

Verk­fer­ill sett­ur upp inn­an embætt­is­ins

Spurður um hvort hon­um finn­ist and­rúms­loftið hafa breyst inn­an lög­regl­unn­ar, nú þegar ákveðið of­beldi eða hót­an­ir gegn lög­reglu­mönn­um virðast vera meiri en áður, seg­ir Ásgeir lög­regl­una líta á það al­var­leg­um aug­um.

Hann nefn­ir að til marks um það séu aðeins ör­fá­ar vik­ur síðan lög­regl­an kláraði að setja upp verk­fer­il inn­an embætt­is­ins sem snýr að því hvernig tekið sé á mál­um þar sem upp koma hót­an­ir og annað slíkt gegn starfs­fólki lög­regl­unn­ar.

Um sé að ræða viðbragðsáætl­un við slík­um mál­um og einnig hafi verið stofnaður viðbragðshóp­ur sem taki þau mál til meðferðar.

„Við hefðum ekki verið að vinna að þessu verklagi nema að okk­ur þætti vera til­efni til.“

„Mögu­lega eru lög­in ekki að vernda okk­ur nægi­lega mikið“

Í sam­tali við mbl.is í gær sagði Fjöln­ir Sæ­munds­son, formaður Lands­sam­bands lög­reglu­manna, að ákall væri inn­an lög­regl­unn­ar um að harðar yrði tekið á mál­um þar sem veist er að lög­reglu­mönn­um.

„Það hef­ur al­veg verið tekið upp við ráðherra og hún er al­veg meðvituð og sam­mála okk­ur, held ég, í því að mögu­lega eru lög­in ekki að vernda okk­ur nægi­lega mikið,“ seg­ir Ásgeir, er hann er spurður nán­ar um ákallið.

„Ég held að það sé klár­lega eitt­hvað sem þurfi að skoða bet­ur, að taka harðar á því þegar brot bein­ist að lög­reglu­manni sem er bara í raun­inni að vinna sitt lög­bundna starf á eðli­leg­an hátt.“

„Þetta at­vik mun ekki beygja lög­regl­una“

Hef­urðu áhyggj­ur af því að þetta gæti haft áhrif á nýliðun inn í lög­regl­una?

„Ég held ekki. Við erum sterk heild þannig að við lát­um ekki svona at­vik beygja okk­ur neitt. Við auðvitað tök­um þetta mjög al­var­lega og erum mjög ósátt, og lög­reglu­menn eru auðvitað svo­lítið hugsi eft­ir þessa uppá­komu sem varð síðustu helgi. En þetta at­vik mun ekki beygja lög­regl­una. Við höld­um áfram að vinna okk­ar vinnu,“ svar­ar Ásgeir og nefn­ir jafn­framt að hann telji að met­umsókn­ar­fjöldi hafi verið í lög­reglu­námið fyr­ir næsta haust.

„Þannig, eins og ég segi: Þetta beyg­ir okk­ur ekki. Þetta bara styrk­ir okk­ur. Lög­regl­an bogn­ar ekki út af þessu.“

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert