Mikil vinna eftir í nefndum og þinglok enn óljós

Ingibjörg Isaksen er þingflokksformaður Framsóknarflokksins.
Ingibjörg Isaksen er þingflokksformaður Framsóknarflokksins. Ljósmynd/Aðsend

Ingi­björg Isak­sen, þing­flokks­formaður Fram­sókn­ar­flokks­ins, seg­ir það óvana­legt að starfs­áætl­un Alþing­is sé felld úr gildi þegar jafn mik­il vinna er eft­ir inn­an nefnda Alþing­is og raun­in er núna.

Ingi­björg seg­ir í sam­tali við mbl.is að ákveðnar þreif­ing­ar hafi átt sér stað á meðal formanna þing­flokka um það hvenær þinglok skuli verða frá því að starfs­áætl­un þings­ins var felld úr gildi í lok sein­ustu viku.

Stjórn­ar­andstaðan hef­ur að sögn Ingi­bjarg­ar ít­rekað kallað eft­ir því að rík­is­stjórn­in for­gangsraði þeim mál­um sem brýn­ust eru sem liggja fyr­ir á þing­inu en hún seg­ir þá for­gangs­röðun ekki vera komna fram.

Skil­ur ekki veg­ferð rík­is­stjórn­ar­inn­ar

Ingi­björg sit­ur í alls­herj­ar- og mennta­mála­nefnd og vel­ferðar­nefnd þings­ins. Hún seg­ir eitt­hvað af mál­um eft­ir í þeim nefnd­um þó að mesta álagið sé á at­vinnu­vega­nefnd­inni en meðal mála á borði at­vinnu­vega­nefnd­ar er hækk­un veiðigjalda þar sem mik­ill fjöldi gesta hef­ur komið fyr­ir nefnd­ina.

„Regl­an er yf­ir­leitt þannig að þegar starfs­áætl­un er tek­in úr sam­bandi, þá er bara eitt­hvað upp­sóp eft­ir í nefnd­um og þá yf­ir­leitt gesta­kom­ur bún­ar. Það er ekki staðan núna. Það er enn verið að dæla inn nýj­um mál­um og ég skil ekki veg­ferðina hjá þess­ari rík­is­stjórn,“ seg­ir Ingi­björg. 

Venja að þingið sé í fríi í júlí

Mik­ill fjöldi mála ligg­ur fyr­ir þing­inu nú þegar líða fer að seinni hluta júní­mánaðar og enn er ekk­ert í hendi varðandi það hvenær þinglok verða. 

„Það er venj­an að starfs­fólk þings­ins fari í frí í júlí. Ef eitt­hvað mikið ber und­ir er haldið áfram en ég veit ekki hvort for­dæmi séu fyr­ir því. Við finn­um að það er stress hjá stjórn­ar­flokk­un­um. Þau eru að átta sig á því sem við höf­um bent á í lang­an tíma,“ seg­ir Ingi­björg aðspurð að því hve lengi þing gæti staðið.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert