Þyngja refsingu barnaníðings

Landsréttur.
Landsréttur. mbl.is/Jón Pétur

Dóm­ur Gunn­ars Magnús­son­ar, fyr­ir að nauðga 14 ára pilti, var í dag þyngd­ur í Lands­rétti. Fórn­ar­lambið hafði hitt Gunn­ar með það í huga að taka upp sam­skipti þeirra og koma upp um Gunn­ar sem barn­aníðing.

Í aðdrag­anda brot­anna hafði dreng­ur­inn horft á frétta­skýr­ingaþátt Komp­ás og er­lenda sjón­varpsþætti þar sem um­sjón­araðilar þátt­anna komu upp um barn­aníðinga með því að þykj­ast vera börn og mæla sér mót við þá. Fékk hann inn­blást­ur fyr­ir sam­skipt­un­um þaðan. 

Lands­rétt­ur hef­ur nú gert Gunn­ari að sæta fang­elsi í tvö ár í stað 18 mánaða eins og Héraðsdóm­ur Reykja­ness hafði áður dæmt. Þá var Gunn­ari einnig gert að greiða miska­bæt­ur upp á 1,8 millj­ón­ir í stað einn­ar millj­ón­ar eins og upp­runa­legi dóm­ur­inn sagði til um. Brotið átti sér stað árið 2021.

Fraus þegar á hólm­inn var komið

Í dómi Lands­rétt­ar kem­ur fram að Gunn­ar hafi látið sér það í léttu rúmi liggja að dreng­ur­inn hafi verið ólögráða. Þar seg­ir að hann hafi ekki gert nokkra til­raun til að ganga úr skugga um rétt­an ald­ur drengs­ins áður en hann nauðgaði hon­um í bif­reið sinni.

Dreng­ur­inn hafði ætlað sér að fram­kvæma tál­beituaðgerð en frosið þegar á hólm­inn var komið. Því hafi hann verið varn­ar­laus þegar Gunn­ar braut á hon­um. Í dómi Lands­rétt­ar var framb­urður fórn­ar­lambs­ins tal­inn trú­verðugur, en framb­urður Gunn­ars um að hann hafi ekki getað vitað af ung­um aldri drengs­ins ótrú­verðugur. 

Fram kom að framb­urður drengs­ins fengi nokk­urn stuðning í niður­stöðu DNA-rann­sókn­ar, af upp­töku sím­tals við Neyðarlín­una og skráðum síma­sam­skipt­um milli hans og Gunn­ars um­rætt kvöld. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert