Andlát: Jón Ingi Cæsarsson

Jón Ingi Cæsarsson.
Jón Ingi Cæsarsson.

Jón Ingi Cæs­ars­son, fv. formaður Póst­manna­fé­lags Íslands, lést á hjarta­deild Land­spít­al­ans 7. júní síðastliðinn, 72 ára að aldri.

Jón Ingi fædd­ist 13. des­em­ber 1952 í Reykja­vík. For­eldr­ar hans voru Þór­dís Ei­ríks­dótt­ir og Krist­vin Krist­ins­son en hann var ætt­leidd­ur af hjón­un­um Huldu Ragn­ars­dótt­ur og Cæs­ari Hall­gríms­syni, sem komu með hann til Ak­ur­eyr­ar sex daga gaml­an. Ólst Jón Ingi upp á Eyr­inni á Ak­ur­eyri og bjó þar að mestu alla ævi sína.

Jón Ingi gekk í Odd­eyr­ar­skóla og Gagn­fræðaskóla Ak­ur­eyr­ar og fór síðar í Póst- og síma­skól­ann. Starfaði hann hjá Pósti og síma, síðar Ísland­s­pósti og Póst­in­um all­an starfs­fer­il­inn. Hann átti lengi sæti í stjórn Póst­manna­fé­lags Íslands, fyrst árin 1984-86, síðan 2000-2009 og árið 2017 var hann kjör­inn formaður fé­lags­ins. Gegndi Jón Ingi því embætti til 2023 en tók eft­ir það sæti í rit­nefnd fé­lags­ins.

Jón Ingi starfaði lengi að bæj­ar­mál­um á Ak­ur­eyri fyr­ir Sam­fylk­ing­una. Var hann kjör­inn formaður flokks­ins á Ak­ur­eyri við stofn­un hans 2001. Þá átti hann sæti í flokks­stjórn Sam­fylk­ing­ar­inn­ar. Var Jón Ingi um tíma vara­bæj­ar­full­trúi fyr­ir flokk­inn og átti sæti í nokkr­um nefnd­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar, m.a. í skóla­nefnd og sem formaður skipu­lags­nefnd­ar og um­hverf­is­ráðs. Hann var einnig í nefnd um svæðis­skipu­lag Eyja­fjarðar. Jón Ingi var jafn­framt í ýms­um nefnd­um og starfs­hóp­um á veg­um Ak­ur­eyr­ar­bæj­ar, m.a. samn­or­rænu verk­efni um um­hverf­is­mál sveit­ar­fé­laga á veg­um Nor­rænu ráðherra­nefnd­ar­inn­ar.

Jón Ingi var virk­ur í þjóðfé­lagsum­ræðunni allt til dauðadags og ritaði fjölda greina í blöð og tíma­rit, m.a. í Morg­un­blaðið, og á eig­in vefsíðu. Var hann öt­ull í skrif­um sín­um að benda á hluti sem að hans mati höfðu aflaga farið. Hann var einnig mik­ill áhugamaður um ljós­mynd­un, nátt­úr­una og varðveislu gam­alla húsa.

Eft­ir­lif­andi eig­in­kona Jóns Inga er Guðrún Gunn­ars­dótt­ir. Syn­ir þeirra eru Atli Viðar, f. 1987, og Bjarki Freyr, f. 1992. Dótt­ir Jóns Inga og Mar­grét­ar Pálu Ólafs­dótt­ur er Brynja, f. 1975. Barna­börn­in eru níu tals­ins og langafa­börn­in þrjú.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert