Kristrún Frostadóttir forsætisráðherra segir andstöðuna sem birtist í tengslum við frumvarp fjármála- og efnahagsráðherra um víxlverkun örorkulífeyrisgreiðslna, koma sér á óvart.
Forsvarsmenn lífeyrissjóða hafa haldið því fram að ef frumvarpið verði óbreytt feli það í sér skerðingu á eignaréttindum sjóðfélaga og geti leitt til skaðabótaskyldu ríkisins samkvæmt 72. grein stjórnarskrárinnar.
Kristrún segir í samtali við mbl.is þetta vera nauðsynlegar breytingar sem hafi legið lengi í farvatninu. „Það lá alveg fyrir að það kerfi sem var til staðar gerði það að verkum að tryggingastofnun og lífeyrissjóðirnir voru að skerða fram og til baka áður en niðurstöðu var náð. Endanleg upphæð sem rann til þeirra á örorkubætum var kannski ekki augljós í upphafi og það þurfti því að taka á þessu,“ segir Kristrún.
„Það var líka vitað mál til að mynda þegar síðasta breyting varðandi lífeyrisgreiðslur var samþykkt af nær öllu þinginu, þar með talið þeim flokkum sem eru núna í stjórnarandstöðu,“ bætir hún við.
Kristrún segir það koma sér á óvart sú andstaða sem er að birtast í tengslum við frumvarpið en það sé alltaf erfitt að fara í kerfisbreytingar.
„Það þarf að skoða þetta í samhengi við að það var verið að samþykkja nýjar örorkukerfisbreytingar. Það verða þar háar upphæðir sem munu renna til þeirra sem fá örorkubætur. Ef þetta færi óbreytt í gegn, það er að segja ekki með þessum breytingum á víxlverkunarfrumvarpinu, þá væru þetta auðvitað miklu lægri upphæðir og þá væri pólitíska niðurstaðan ekki sú sem ætluð var.“
Viðræður eru á milli lífeyrissjóðanna og fjármálaráðuneytisins, með aðkomu annarra aðila, um frumvarpið.