Miklu fleiri brot gegn lögreglumönnum

Meðalfjöldi mála á mánuði árið 2024 þar sem lögreglumönnum var …
Meðalfjöldi mála á mánuði árið 2024 þar sem lögreglumönnum var ýmist hótað ofbeldi eða beittir ofbeldi var 16,3 á mánuði. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Fjöldi brota þar sem lög­reglu­mönn­um var ým­ist hótað of­beldi eða beitt­ir lík­am­legu of­beldi á meðan þeir sinntu starfi sínu voru um 220 tals­ins árið 2024. Það eru 39% fleiri brot en meðaltal brota síðustu fimm ára á und­an.

Þetta kem­ur fram í skýrslu sem gagna­vís­inda­deild rík­is­lög­reglu­stjóra vann upp úr mála­skrá lög­regl­unn­ar sem mbl.is hef­ur und­ir hönd­um. Gögn­in ná aft­ur til árs­ins 2007.

Það sem af er ári sést að mál­um af þess­um toga fjölg­ar sé horft til meðaltals mála í hverj­um mánuði.

Graf/​Rík­is­lög­reglu­stjóri

Of­beldi mest á Suður­nesj­um

Sést í skýrsl­unni að fjöldi mála hef­ur al­mennt verið á bil­inu 10-12 á mánuði, að und­an­skild­um ár­un­um 2007 og 2008 þar sem fjöldi mála var að meðaltali um 14 og 15 á mánuði.

Árið 2024 og það sem af er ári er meðaltal mála hins veg­ar um 16-17 á mánuði.

Þá kem­ur fram að árið 2024 hafi of­beldi og hót­an­ir gegn lög­regl­unni auk­ist mest á Suður­nesj­um miðað við síðustu fimm ár á und­an. Ekki var að sjá aukn­ingu á höfuðborg­ar­svæðinu.

Til­felli þar sem fyr­ir­mæl­um lög­reglu var ekki hlýtt voru flest árið 2023 en voru færri árið 2024 og er meðaltal þeirra mála það sem af er ári svipað og í fyrra.

Graf/​Rík­is­lög­reglu­stjóri
Graf/​Rík­is­lög­reglu­stjóri
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert