Sjö árum síðar blasir sárið enn við

Mikil skriða féll úr Fagraskógarfjalli í byrjun júlí árið 2018. …
Mikil skriða féll úr Fagraskógarfjalli í byrjun júlí árið 2018. Er hún sú stærsta sem fallið hefur á sögulegum tíma á Íslandi. Þó að landið sé talsvert gróið leyna sár skriðunnar sér ekki. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Mik­il skriða féll úr Fagra­skóg­ar­fjalli í Hít­ar­dal fyr­ir rétt tæp­um sjö árum í sum­ar. Skriðan hafði mik­il áhrif og breytti far­vegi Hít­ar­ár. Mikið lón myndaðist norðan við skriðuna um tíma áður en áin fann sér nýj­an far­veg.

Þegar blaðamaður og ljós­mynd­ari Morg­un­blaðsins voru á ferðinni um Hít­ar­dal ný­verið þurfti ekki mjög þjálfað auga til að koma auga á sárið sem enn blas­ir við, enda féll mikið af efni úr fjall­inu.

Það var snemma morg­uns 7. júlí 2018 að skriða féll úr Fagra­skóg­ar­fjalli og stíflaði ána. Af jarðskjálfta­mæl­um Veður­stofu Íslands að dæma fór hún af stað um klukk­an 5.17. Eyðilagði skriðan mikið land und­ir hlíðum fjalls­ins. Rúm­um sól­ar­hring síðar hafði áin, sem renn­ur úr Hít­ar­vatni, fundið sér nýj­an far­veg og leitaði í hliðarána Tálma, og renn­ur þar nú.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert