Skemmdir bílar skildir eftir

Skemmdur bíll án bílnúmers utan vegar í Borgarfirði.
Skemmdur bíll án bílnúmers utan vegar í Borgarfirði. mbl.is/Björn Jóhann

Al­gengt er að koma auga á ónýta bíla í veg­könt­um en sum­ir standa jafn­vel í marga mánuði án af­skipta.

Ásmund­ur Krist­inn Ásmunds­son, yf­ir­lög­regluþjónn hjá lög­regl­unni á Vest­ur­landi, seg­ir það mjög al­gengt að bíl­ar séu skild­ir eft­ir í veg­kanti eft­ir að hafa bilað eða lent utan veg­ar, en ábyrgð á að láta fjar­lægja bíl­inn hvíli yf­ir­leitt á eig­anda bíls­ins.

Snýst oft um kostnað

Hann seg­ir bíla stund­um liggja í veg­kanti í ein­hvern tíma áður en ein­hver tek­ur af skarið og læt­ur fjar­lægja þá.

„Það er stund­um spurn­ing um hver á að láta fjar­lægja bíl­inn því auðvitað snýst þetta oft um kostnað,“ seg­ir Ásmund­ur en ef staðsetn­ing bíls skap­ar hættu fjar­læg­ir lög­regl­an hann eða Vega­gerðin ef eig­andi ger­ir það ekki.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert