Tekinn með fíkniefni og nokkrar milljónir í reiðufé

mbl.is/Eggert

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu lagði hald á tölu­vert magn af ætluðum fíkni­efn­um og nokkr­ar millj­ón­ir í reiðufé við hús­leit í íbúð í miðborg­inni fyrr í vik­unni.

Að sögn lög­reglu var hús­ráðandi, sem er karl­maður á fer­tugs­aldri, hand­tek­inn í þágu rann­sókn­ar­inn­ar. Lög­regl­an seg­ir enn frem­ur í til­kynn­ing­unni að rann­sókn­inni miði vel.

Talið tengj­ast fíkni­efna­sölu

Þá tók lög­regl­an einnig í sína vörslu síma og tölv­ur hús­ráðanda, auk vega­bréfs óskylds aðila, en það fannst einnig á vett­vangi.

„Grun­ur leik­ur á að reiðuféð, sem sam­an­stóð af bæði ís­lensk­um og er­lend­um seðlum, sé til­komið vegna sölu fíkni­efna,“ seg­ir í til­kynn­ingu lög­regl­unn­ar.

Hún minn­ir um leið á upp­lýs­ingasíma lög­reglu 800 5005.

„Í hann má hringja nafn­laust til að koma á fram­færi upp­lýs­ing­um um skipu­lagða brot­a­starf­semi eða önn­ur brot sem fólk hef­ur vitn­eskju um.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert