„Þurfum bara að rífast um hvert á að fara“

Finnbjörn tók til máls á fundi dagsins.
Finnbjörn tók til máls á fundi dagsins. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Finn­björn Her­manns­son, for­seti ASÍ, tel­ur sátt ríkja á vinnu­markaði þessa stund­ina og að ár­ang­ur þess að sam­komu­lag um kjara­samn­inga hafi náðst sjá­ist ber­sýni­lega. 

Þetta seg­ir Finn­björn í sam­tali við mbl.is að lok­inni kynn­ingu Kjara­töl­fræðinefnd­ar á vor­skýrslu sinni nú fyrr í morg­un í húsa­kynn­um Rík­is­sátta­semj­ara.  

Nokkuð fjölmennt var á fundinum í morgun þar sem skýrsla …
Nokkuð fjöl­mennt var á fund­in­um í morg­un þar sem skýrsla nefnd­ar­inn­ar var kynnt fyr­ir gest­um. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Nauðsyn­leg­ur vett­vang­ur

Kjara­töl­fræðinefnd er sam­starfs­nefnd rík­is, sveit­ar­fé­laga og heild­ar­sam­taka á vinnu­markaði um gerð og hag­nýt­ingu talna­efn­is um laun og efna­hag til und­ir­bún­ings og eft­ir­fylgni með kjara­samn­ing­um.

Finn­björn kveðst ánægður með það hlut­verk sem nefnd­in hef­ur sinnt frá því að hún tók til starfa í lok árs 2019. 

„Þetta er nauðsyn­leg­ur vett­vang­ur þar sem all­ir aðilar vinnu­markaðar­ins koma sam­an og taka sam­an hvað hef­ur verið í gangi og hvað er að ger­ast og tengj­um það sam­an við sam­fé­lagið. Þá vit­um við hvaðan við kom­um og þá þurf­um við í næstu kjara­samn­ingaviðræðum bara að ríf­ast um hvert við eig­um að fara.“

Finn­björn seg­ir störf nefnd­ar­inn­ar hafa hjálpað aðilum vinnu­markaðar­ins mjög síðastliðin ár í því að ná sam­an um kjara­samn­inga. 

„Ég hef setið marg­ar kjaraviðræður þar sem ágrein­ing­ur hef­ur að stóru leyti snú­ist um það hvaðan við erum að koma eða hvernig þróun hef­ur verið. Með vinnu Kjara­töl­fræðinefnd­ar er slík­ur ágrein­ing­ur úr sög­unni,“ seg­ir Finn­björn. 

Arnaldur Sölvi Kristjánsson, sérfræðingur Kjaratölfræðinefndar.
Arn­ald­ur Sölvi Kristjáns­son, sér­fræðing­ur Kjara­töl­fræðinefnd­ar. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Ganga þurfi í takt

Finn­björn seg­ir að í ljósi þeirr­ar sátt­ar sem ríki þessa stund­ina sé nauðsyn­legt að all­ir aðilar gangi í takt. 

„Við erum nú bund­in í báða skó af þeim kjara­samn­ing­um sem gerðir hafa verið. Hvernig þró­un­in verður til framtíðar velt­ur á þvi hvernig aðrir aðilar á markaði haga sér. Hér á ég við versl­un­ina og olíu­fyr­ir­tæk­in til að mynda.“

Styrk­ing hef­ur orðið á krón­unni og Finn­björn seg­ir fulla ástæðu til að lækka verð hér­lend­is sem ekki hafi orðið raun­in. Hann seg­ir því ekki alla ganga í takt.

„Það er mjög óeðli­legt að þegar launa­fólk hef­ur bundið hend­ur sín­ar með kjara­samn­ing­um spili aðrir sitt eigið spil án þess að taka til­lit til þess hvert við erum að fara,“ bæt­ir Finn­björn við. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert