„Til hvers erum við þá með þing?“

Hildur Sverrisdóttir alþingiskona
Hildur Sverrisdóttir alþingiskona mbl.is/Árni Sæberg

„Það er ekk­ert í þing­hús­inu sem gef­ur ein­hver teikn um að þinglok séu nánd,“ seg­ir Hild­ur Sverr­is­dótt­ir þing­flokks­formaður Sjálf­stæðis­flokks­ins en sam­kvæmt áætl­un þings­ins átti loka­dag­ur þings­ins að vera í dag.

Hild­ur seg­ir ljóst að þung mál séu allt of skammt á veg kom­in svo hægt sé að ná sam­stöðu um slíkt. Þar má nefna veiðigjöld, strand­veiðimál, mál tengd líf­eyr­is­sjóðum og bók­un 35 sem komu inn á loka­dög­um þings­ins.

Stór mál sem koma allt of seint

„Það hafa komið fram stór mál allt of seint sem krefjast mik­ill­ar vinnu. Þetta plan, ef plan skyldi kalla, er ekki að fara að ganga upp og það hef­ur blasað við lengi. Þetta minn­ir um margt á Jó­hönnu­stjórn­ina sem hafði slík vinnu­brögð uppi og ekki skilaði það nú góðum ár­angri,“ seg­ir Hild­ur.

„Við krefj­umst þess að stjórn­in for­gangsraði bet­ur sín­um mál­um svo hægt sé að vinna þau al­menni­lega, svo hægt sé að taka þau til af­greiðslu. Það verður ekki hægt að keyra svona risa­stór mál í gegn­um þingið svona illa unn­in og eft­ir svona litla þing­lega meðferð. Það er eng­in virðing bor­in fyr­ir þess­ari þing­legu meðferð og það er okk­ar hlut­verk að spyrna við fót­um. Ef það þýðir að við þurf­um að sitja í allt sum­ar þá ger­um við það,“ seg­ir Hild­ur.

Hún bend­ir á að af ein­hverj­um ástæðum hafi stjórn­in ákveðið að setja einnig bók­un 35 á dag­skrá jafn­vel þó ljóst sé að það muni verða „umræðuþungt og ekki brýnt mál í neinu sam­hengi.“

Ólýðræðis­legt og hættu­legt

„Það kann vel að vera að stjórn­in reyni að spila mál­in þannig að Sjálf­stæðis­menn séu í „fýlu“ vegna þess að þeir séu ekki í stjórn og að þetta séu ein­hverj­ir leik­ir. En það er alrangt, við erum lauflétt. En það er hlut­verk okk­ar að benda á að mál­in eru ekki að fá til­hlýðlega þing­lega meðferð og það er ótækt að stjórn­in vilji keyra mál í gegn án þess að hagaðilar eða þingið geti skoðað mál­in með full­nægj­andi hætti. Til hvers erum við þá með þing ef þetta er gert með þess­um hætti? Þetta er ólýðræðis­legt og þetta er hættu­leg sýn á hlut­verk lög­gjaf­arþings­ins,“ seg­ir Hild­ur.

 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert