Umfjöllun hafi enga stoð í lagalegum forsendum

Embætti landlæknis segir að það muni ekki tjá sig frekar …
Embætti landlæknis segir að það muni ekki tjá sig frekar um málið, enda sé ákvörðun um sviptingu starfsleyfis heilbrigðisstarfsmanns ávallt kæranleg til heilbrigðisráðuneytisins. Samsett mynd/mbl.is/Eggert/Aðsend

Embætti land­lækn­is seg­ir að um­fjöll­un sem hafi birst í fjöl­miðlum um að Guðmund­ur Karl Svein­björns­son hafi verið svipt­ur lækn­inga­leyfi hafi enga stoð í þeim laga­legu for­send­um sem lagðar hafi verið til grund­vall­ar í mál­inu. 

Guðmund­ur grein­di frá mál­inu í gær á Face­book-síðu sinni. Þar sagði hann að bréf þess efn­is að hann væri svipt­ur leyfi hefði verið sent þann 5. júní. Hann krefst end­ur­mats á svipt­ing­unni. 

Embætti land­lækn­is hef­ur sent frá sér til­kynn­ingu í tengsl­um við um­fjöll­un fjöl­miðla um málið, þar sem stjórn­völdsákvörðun embætt­is­ins er staðfest. 

Embætt­inu áskipað að bregðast við

„Embætti land­lækn­is ber þá laga­legu skyldu skv. lög­um um land­lækni og lýðheilsu nr. 41/​2007 að hafa eft­ir­lit með þeim rekstri heil­brigðisþjón­ustu sem lög­um sam­kvæmt ber að til­kynna til embætt­is­ins áður en starf­semi hefst. Í þeim til­vik­um þar sem rekst­ur heil­brigðisþjón­ustu hef­ur ekki hlotið lög­bundna staðfest­ingu land­lækn­is er embætt­inu áskipað lög­um sam­kvæmt að bregðast við í sam­ræmi við III. kafla laga um land­lækni og lýðheilsu.

Sam­kvæmt 1. mgr. 7. gr. sömu laga hef­ur land­lækn­ir heim­ild til að krefja heil­brigðis­starfs­menn, heil­brigðis­stofn­an­ir og aðra sem veita heil­brigðisþjón­ustu um upp­lýs­ing­ar og gögn sem hann tel­ur nauðsyn­leg til að sinna eft­ir­lits­hlut­verki sínu og er þeim skylt að verða við slíkri kröfu,“ seg­ir í til­kynn­ingu land­lækn­is. 

Tjá­ir sig ekki frek­ar um málið

„Embætti land­lækn­is vill árétta að um­fjöll­un, sem birst hef­ur í fjöl­miðlum um fram­an­greinda svipt­ingu starfs­leyf­is lækn­is, hef­ur enga stoð í þeim laga­legu for­send­um sem lagðar voru til grund­vall­ar í nefndu máli.

Embætti land­lækn­is hyggst ekki tjá sig frek­ar um um­rætt mál, enda er ákvörðun um svipt­ingu starfs­leyf­is heil­brigðis­starfs­manns ávallt kær­an­leg til heil­brigðisráðuneyt­is­ins,“ seg­ir enn frem­ur. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert