Baðlón við Holtsós í skipulagsferli

Framkvæmdir við baðlón hafa mætt andstöðu nágranna.
Framkvæmdir við baðlón hafa mætt andstöðu nágranna. mbl.is/Sigurður Bogi

Áform um hót­el og baðlón við Holtsós und­ir Eyja­fjöll­um hafa mætt and­stöðu meðal íbúa í nærsveit­um. Safnað hef­ur verið und­ir­skrift­um og skilað inn form­leg­um mót­mæl­um, auk þess sem virk­ur und­ir­skriftalisti er inni á Ísland.is. Þá hafa Vega­gerðin og Fugla­vernd einnig gert at­huga­semd­ir við áformin, m.a. vegna viðkvæms vist­kerf­is.

Eins og fram hef­ur komið í blaðinu eru áform um baðlón, tvö hót­el með sam­tals 320 her­bergj­um, 100 gistiskála í smá­hýs­um og 15 starfs­mann­a­í­búðir ásamt fjöl­orku­stöð. Heild­ar­bygg­ing er tæp­ir 36 þúsund fer­metr­ar. Fyrsti hluti verks­ins á að vera til­bú­inn 2026.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert