Lögregla og slökkvilið voru kölluð á gistiheimili á höfuðborgarsvæðinu í dag vegna mikils vatnstjóns.
Þetta kemur fram í dagbók lögreglu þar sem greint er frá verkefnum lögreglu frá klukkan 5 í morgun til klukkan 17 í dag.
Þá var lögreglu tilkynnt um líkamsárás í miðborginni og er málið í rannsókn hjá lögreglu.
Einnig var tilkynnt um umferðarslys framan við verslun. Skemmdir voru á bifreiðum á vettvangi og reyndist ökumaður í annarlegu ástandi.
Lögreglu barst jafnframt tilkynning um aðila sem fór í leyfisleysi inn í fjölda bifreiða. Hafði lögregla upp á honum og var hann vistaður í fangageymslu í þágu rannsóknar málsins.
Þá var tilkynnt um eld í bifreið. Lögregla fór á vettvang ásamt slökkviliði.