KR spilar í Frostaskjóli í júlí

Hitalagnir lagðar á heimavöll KR sem senn verður orðinn leikhæfur.
Hitalagnir lagðar á heimavöll KR sem senn verður orðinn leikhæfur. mbl.is/Eggert Jóhannesson

„Það verður ólýs­an­legt, al­gjör­lega geggjað. Við sökn­um þess að liðin okk­ar fái að spila heima og hafi sóma­sam­lega æf­ingaaðstöðu. Það verður virki­lega gott að fá hana aft­ur,“ seg­ir Pálmi Rafn Pálma­son fram­kvæmda­stjóri KR í sam­tali við Morg­un­blaðið.

KR hef­ur und­an­farið spilað fót­bolta fjarri Vest­ur­bæn­um, í Laug­ar­daln­um, á velli Þrótt­ara.

Nú seg­ist Pálmi hins veg­ar sjá fyr­ir end­ann á fram­kvæmd­un­um og að KR muni spila þar í júlí. Hann seg­ir Land­lagn­ir vera að leggja lagn­ir í Frosta­skjóli. Í kjöl­farið verði sandað og loks komið fyr­ir púða og gervi­grasi.

Hann seg­ist ekki geta ít­rekað þakk­læti sitt í garð fram­kvæmdaaðila nægi­lega mikið en taf­irn­ar skrif­ist ekki á þá held­ur hafi jarðveg­ur­inn leikið knatt­spyrnu­fé­lagið grátt. Bjössi ehf. hef­ur séð um jarðvegs­vinnu á vell­in­um. Að sögn Pálma þurfti að skipta um tölu­vert meira af jarðvegi en talið var í fyrstu.

Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Nán­ar um málið
í Morg­un­blaðinu
Áskrif­end­ur:
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert