Krafa gerð um gæsluvarðhald

Tveir einstaklingar fundust látnir á Edition- hótelinu í morgun. Málið …
Tveir einstaklingar fundust látnir á Edition- hótelinu í morgun. Málið er rannsakað sem manndráp. mbl.is/Ólafur Árdal

Krafa verður gerð um gæslu­v­arðhald yfir Frakk­an­um sem hef­ur stöðu sak­born­ings í mann­dráps­máli á Ed­iti­on-hót­el­inu. 

Þetta seg­ir Ævar Pálmi Pálma­son aðstoðar­yf­ir­lög­regluþjónn í sam­tali við mbl.is. 

Mbl.is greindi frá því fyrr í dag að tveir fransk­ir rík­is­borg­ar­ar hafi fund­ist látn­ir á Ed­iti­on-hót­el­inu í miðbæ Reykja­vík­ur í morg­un.

Ann­ar fransk­ur rík­is­borg­ari var flutt­ur á sjúkra­hús með al­var­lega áverka og sá hef­ur stöðu sak­born­ings. Þeir látnu og hinn grunaði voru að ferðast sam­an. 

Mik­ill viðbúnaður var á vett­vangi og hef­ur mbl.is flutt frétt­ir frá því í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert