Núna hægt að bóka tíma í blóðgjöf á Noona

Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag. Hægt er að skrá sig …
Alþjóðlegi blóðgjafadagurinn er í dag. Hægt er að skrá sig sem blóðgjafa núna á smáforritinu Noona. mbl.is/Guðmundur Rúnar Guðmundsson

Blóðbank­inn til­kynnti á dög­un­um sam­starf við smá­for­ritið Noona. Mark­miðið er að auðvelda fólki að ný­skrá sig til að ger­ast blóðgjaf­ar. Mik­il þörf er á nýj­um blóðgjöf­um, sér­stak­lega kon­um og ungu fólki.

„Þörf­in er svo gríðarlega mik­il. Við þurf­um 2.000 nýja blóðgjafa á ári og á síðastliðnum fimm árum hef­ur það bara tek­ist einu sinni,“ seg­ir Davíð Stefán Guðmunds­son, formaður Blóðgjafa­fé­lags Íslands.

Ákall eft­ir fleiri kon­um og ungu fólki

Á Íslandi eru ein­ung­is 30% af öll­um blóðgjöf­um kon­ur, en á öðrum Norður­lönd­um eru þær um 50%. Það er því mik­ill vilji fyr­ir því að fjölga kon­um í hópi blóðgjafa.

Davíð seg­ir einnig mark­mið fé­lags­ins að ná til ungs fólks. „Ég get varla hugsað mér dýr­mæt­ara og mik­il­væg­ara skref í átt­ina að auk­inni sam­fé­lags­legri ábyrgð hjá ungu fólki en að gefa blóð,“ seg­ir hann. 

Blóðgjöf eins og Saga Class

Hann seg­ir suma lýsa blóðgjöf eins og að fara á Saga Class. „Það er svo æðis­leg upp­lif­un, góðar veit­ing­ar og ert að bjarga manns­líf­um... það er varla hægt að toppa það kom­bó,“ seg­ir Davíð og hlær. Hann seg­ir eina blóðgjöf aðeins taka hálf­tíma og að ein heim­sókn geti bjargað þrem­ur manns­líf­um. 

Mátt­ur fimm­unn­ar seg­ir hann jafn­framt vera ótrú­leg­an og út­skýr­ir að ef ein­stak­ling­ar koma fimm sinn­um virðast þeir hafa komið blóðgjöf­um í rútínu. Fimm heim­sókn­ir geta bjargað fimmtán manns.

Davíð hvet­ur alla lands­menn til þess að skrá sig sem blóðgjafa á Noonam enda blóðgjaf­ir ein af und­ir­stöðum ís­lensks heil­brigðis­kerf­is. 

Í dag er alþjóðlegi blóðgjafa­dag­ur­inn hald­inn hátíðleg­ur um all­an heim og var haldið upp á dag­inn í Blóðbank­an­um í gær með vöffl­um og til­heyr­andi. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert