Tveir erlendir ferðamenn fundust látnir á hóteli í miðborginni á áttunda tímanum í morgun. Þriðji aðilinn, einnig erlendur ferðamaður, var einnig á vettvangi og var hann með áverka.
Viðkomandi var færður undir læknishendur, að því er segir í tilkynningu frá lögreglunni.
Tilkynning um málið barst lögreglunni kl. 7.14 en málsatvik eru um margt óljós enda rannsókn þess á frumstigi, segir í tilkynningunni.
Ekki er hægt að veita frekari upplýsingar að svo stöddu, segir lögreglan.
Fyrr í morgun staðfesti slökkviliðið á höfuðborgarsvæðinu við mbl.is að atvikið hefði gerst á Reykjavik Edition-hótelinu. Fjórir sjúkrabílar voru sendir á vettvang og einn dælubíll.
Samkvæmt heimildum mbl.is var einni hæð hótelsins lokað af sérsveit ríkislögreglustjóra og gestum sagt að halda sig inni á herbergjum sínum.
Helena Rós Sturludóttir, samskiptastjóri ríkislögreglustjóra, staðfesti við mbl.is í morgun að sérsveitin hefði veitt lögreglunni aðstoð.