50 björgunarsveitarmenn leituðu að Sigríði

Slysavarnafélagið Landsbjörg leitaði konunnar í nótt.
Slysavarnafélagið Landsbjörg leitaði konunnar í nótt. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Um 50 björg­un­ar­sveit­ar­menn leituðu að Sig­ríði Jó­hanns­dótt­ur þangað til um fjög­ur­leytið í nótt, án ár­ang­urs.

Lög­regl­an lýsti eft­ir henni um eitt­leytið í nótt þar sem kom fram að ekk­ert væri vitað um ferðir henn­ar síðan á föstu­dag.

Að sögn Jóns Þórs Víg­lunds­son­ar, upp­lýs­inga­full­trúa Slysa­varn­ar­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar, barst út­kallið rétt fyr­ir miðnætti. Gengið var um í hóp­um og leitað að kon­unni, auk þess sem hjól og drón­ar voru notuð.

Leitað var á Reykja­vík­ur­svæðinu, meðal ann­ars í ná­grenni við heim­ili henn­ar.

Um fjög­ur­leytið var ákveðið að fresta leit­inni. Lög­regl­an ákveður næstu skref í dag, að sögn Jóns Þórs. Hann hvet­ur fólk sem hef­ur ein­hverj­ar vís­bend­ing­ar um að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 112.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert