Fjórir eru enn í haldi lögreglunnar á Norðurlandi eystra vegna tveggja aðskildra mála sem urðu á Akureyri um helgina, tveir eru í haldi grunaðir um aðild að líkamsárás og tveir vegna kynferðisafbrotamáls.
Þá hefur einn verið látinn laus úr haldi eftir að skýrsla var tekin af honum vegna annars kynferðisafbrotamáls sem sömuleiðis varð um helgina. Þetta segir Árni Páll Jóhannsson, aðalvarðstjóri hjá lögreglunni, í samtali við mbl.is.
„Það eru fjórir enn þá í klefa hjá okkur vegna tveggja aðskildra mála og þetta er í ferli hjá rannsóknardeildinni hjá okkur og þeir bíða skýrslutöku. Þeir verða vonandi teknir fyrir þegar líður á kvöldið,“ segir Árni.
Bíladagar á Akureyri standa yfir fram á þriðjudag og því mikið um að vera í bænum.
Spurður hvernig umferðin hafi verið það sem af er degi segir Árni: „Það hefur ekkert verið bókað eftir daginn þannig hún hefur bara gengið vel.“
Bílvelta varð við Hlíðarbæ skammt frá Akureyri í gærkvöldi en ökumaður bifreiðarinnar og farþegi voru fluttir á bráðamóttöku með minniháttar meiðsli.