Leit að Sigríði er hafin að nýju

Leitin að Sigríði er hafin á ný.
Leitin að Sigríði er hafin á ný. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leit­in að Sig­ríði Jó­hanns­dótt­ur er haf­in á ný. Björg­un­ar­sveit­ar­menn leita nú að Sig­ríði á „lík­leg­um svæðum,“ sam­kvæmt Jóni Þór Víg­lunds­syni, upp­lýs­inga­full­trúa Lands­bjarg­ar. Hann seg­ir lög­regl­una vera að skoða málið og reyna að finna vís­bend­ing­ar.

Jón seg­ir hóp­inn sem leit­ar nú vera tals­vert minni en sá hóp­ur sem leitaði í nótt.

Ekki er vitað um fram­hald leit­ar­inn­ar „nú þarf aðeins að líða af þess­um degi og sjá hvað hann ber í skauti sér,“ seg­ir hann.

Lög­regla lýsti eft­ir Sig­ríði og stóð um­fangs­mik­il leit yfir í nótt þar sem um 50 björg­un­ar­sveit­ar­menn stóðu að leit­inni. Ekk­ert er vitað um ferðir henn­ar síðan á föstu­dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert
Loka