Leit að Sigríði frestað

Leitað var á ákveðnum svæðum í dag og er málið …
Leitað var á ákveðnum svæðum í dag og er málið nú í höndum lögreglu. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Leit að Sig­ríði Jó­hanns­dótt­ur hef­ur verið frestað.

Þetta seg­ir Jón Þór Víg­lunds­son, upp­lýs­inga­full­trúi Lands­bjarg­ar við mbl.is.

Hann seg­ir að leitað hafi verið á ákveðnum svæðum í dag og að málið sé nú í hönd­um lög­reglu sem taki ákvörðun um fram­haldið.

Lög­regla lýsti eft­ir Sig­ríði og stóð um­fangs­mik­il leit yfir í nótt þar sem um 50 björg­un­ar­sveit­ar­menn stóðu að leit­inni. Ekk­ert er vitað um ferðir henn­ar síðan á föstu­dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert