Lögreglan lýsir eftir Sigríði

Ljósmynd/Lögreglan

Lög­regl­an á höfuðborg­ar­svæðinu lýs­ir eft­ir Sig­ríði Jó­hanns­dótt­ur, 56 ára, en ekk­ert er vitað um ferðir henn­ar síðan á föstu­dag.

Sig­ríður, er um 170 cm á hæð, þétt­vax­in, grá­hærð með rauðar stríp­ur í axl­arsíðu hári.  Hún er tal­in vera klædd í grá­um þunn­um jakka, sem nær að hnjám, með hettu en blóma­útsaumuðum erm­um. Hún er klædd í svarta skó og með lit­ríka hliðartösku, að því er seg­ir í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni.

Þeir sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Sig­ríðar eru beðnir að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 112.

Ljós­mynd/​Lög­regl­an
mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert