Nokkrir sagðir hafa veist að einum

Nóg var að gera hjá lögreglunni.
Nóg var að gera hjá lögreglunni. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Óskað var eft­ir aðstoð lög­regl­un­ar vegna slags­mála í miðborg Reykja­vík­ur þar sem nokkr­ir voru sagðir hafa veist að ein­um.

Þegar lög­reglu­menn ætluðu að ræða við þann sem hafði sig mest í frammi hóf hann að streit­ast á móti þeim. Hann hafði ekki er­indi sem erfiði og var á end­an­um hand­tek­inn og flutt­ur á lög­reglu­stöð, að því er seg­ir í dag­bók lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu vegna verk­efna frá klukk­an 17 í gær­kvöldi til kl. 5 í morg­un.

Hótað líf­láti og ekið á bygg­ingu

Óskað var aðstoðar lög­reglu þar sem ein­stak­ling­ur kvaðst hafa orðið fyr­ir líf­láts­hót­un­um og lík­ams­árás. Málið er í rann­sókn.

Til­kynnt var um um­ferðarslys í Reykja­vík þar sem bif­reið var ekið á bygg­ingu. Ökumaður­inn slasaðist lít­il­lega. Hann var vistaður í fanga­klefa grunaður um að aka und­ir áhrif­um áfeng­is.

Angraði fólk 

Óskað var aðstoðar lög­reglu að öl­húsi vegna ein­stak­lings í ann­ar­legu ástandi og að angra fólk. Sá er grunaður um brot á lög­reglu­samþykkt fyr­ir Reykja­vík­ur­borg. Þar sem hann var í mjög svo ann­ar­legu ástandi og ekki skýrslu­hæf­ur var hann vistaður í fanga­klefa.

Til­kynnt var um um­ferðarslys í um­dæmi lög­regl­unn­ar í Hafnar­f­irði og Garðabæ þar sem bif­reið var ekið á staur. Eng­in slys urðu á fólki.

Ökumaður bif­reiðar var stöðvaður í Reykja­vík eft­ir að hafa ekið gegn rauðu ljósi. Hann reynd­ist vera svipt­ur öku­rétt­ind­um og er grunaður um að aka und­ir áhrif­um áv­ana og/​eða fíkni­efna. Hann var lát­inn laus að lok­inni blóðsýna­töku.

Ljós­mynd/​Colour­box

Á ónýt­um hjól­börðum

Ökumaður bif­reiðar var stöðvaður við al­mennt um­ferðareft­ir­lit. Hann reynd­ist ekki vera með öku­rétt­indi meðferðis. Þá reynd­ist vinstra aft­ur ljós bif­reiðar­inn­ar ekki vera virkt, auk þess sem bif­reiðin var á tveim­ur ónýt­um hjól­börðum. Ökumaður­inn á von á sekt og bif­reiðin var boðuð í skoðun.

Lík­ams­árás

Í um­dæmi lög­regl­unn­ar í Kópa­vogi og Breiðholti var til­kynnt um lík­ams­árás fyr­ir utan fjöl­býl­is­hús. Einnig var til­kynnt um ein­stak­ling í ann­ar­legu ástandi að reyna að kom­ast inn í sam­eign.

Nokkr­ir öku­menn eiga jafn­framt von á sekt fyr­ir að aka bif­reiðum sín­um yfir leyfi­leg­um há­marks­hraða.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert