Sakamál og mannslíkaminn heilluðu

Emma Jóna er einn af fáum réttarmeinafræðingum hérlendis.
Emma Jóna er einn af fáum réttarmeinafræðingum hérlendis. Ljósmynd/Aðsend

Emma Jóna Her­manns­dótt­ir, 27 ára Ísfirðing­ur, út­skrifaðist ný­verið úr masters­námi í rétt­ar­meina­fræði frá há­skól­an­um í Upp­söl­um. 

„Ég hef alltaf haft áhuga á saka­mál­um og manns­lík­am­an­um,“ seg­ir Emma og bæt­ir við að rétt­ar­meina­fræði sam­eini þessi tvö áhuga­svið. Því lá bein­ast við að skrá sig í námið.

Þá seg­ir Emma námið hafa verið spenn­andi en jafn­framt krefj­andi, en hún stefn­ir á að starfa sem rétt­ar­meina­fræðing­ur hér­lend­is.

Námið heill­andi

Emma Jóna er með BS-gráðu í líf­efna- og sam­einda­líf­fræði auk annarr­ar há­skóla­gráðu í líf­einda­fræði frá Há­skóla Íslands.

Eft­ir langa skóla­göngu í Há­skóla Íslands kaus Emma að færa sig um set og kannaði nám á sviði manns­lík­am­ans er­lend­is. Þar rakst hún á nám í rétt­ar­meina­fræði sem heillaði strax.

Rétt­ar­meina­fræði (e. for­ensic science) er notk­un vís­inda­legra aðferða á borð við DNA-rann­sókna og fingrafara í rann­sókn­um á saka­mál­um.

Emma seg­ir að í nám­inu sé aðallega lögð áhersla á það hvernig safna skal sönn­un­ar­gögn­um af saka­mála­vett­vangi auk úr­vinnslu af sýn­um á rann­sókn­ar­stof­um.  

Öll sönnunargögn skoðuð í þaula.
Öll sönn­un­ar­gögn skoðuð í þaula. Ljós­mynd/​Aðsend

Kær­komið sum­ar­frí

Næst á dag­skrá hjá Emmu er kær­komið sum­ar­frí, en hún seg­ir mikið álag fylgja nám­inu. Að frí­inu loknu hefst at­vinnu­leit.

Emma hyggst starfa hér­lend­is sem rétt­ar­meina­fræðing­ur og seg­ist for­vit­in um hvernig starf rétt­ar­meina­fræðinga á Íslandi sé, þar sem sýni lög­reglu eru gjarn­an send er­lend­is til frek­ari grein­ing­ar.

Emma stundaði námið í háskólanum í Uppsölum í Svíþjóð.
Emma stundaði námið í há­skól­an­um í Upp­söl­um í Svíþjóð. Ljós­mynd/​Aðsend
Réttarmeinafræðingar hjálpa við rannsókn á sakamálum.
Rétt­ar­meina­fræðing­ar hjálpa við rann­sókn á saka­mál­um. Ljós­mynd/​Aðsend
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert