Tvær sundlaugar vinsælli en Laugardalslaug

Sundlaug Kópavogs er vinsælasta sundlaug höfuðborgarsvæðisins. Þangað kom rétt tæplega …
Sundlaug Kópavogs er vinsælasta sundlaug höfuðborgarsvæðisins. Þangað kom rétt tæplega hálf milljón gesta í fyrra. mbl.is/Birta Margrét

Aðsókn í sund­laug­ar á höfuðborg­ar­svæðinu jókst um 3,5% á síðasta ári frá ár­inu á und­an. Er það nokkuð um­fram fólks­fjölg­un á höfuðborg­ar­svæðinu. Mesta aukn­ing milli ára er í Garðabæ, en þar fjölgaði heim­sókn­um um 15,4% milli ára. Hluti skýr­ing­ar­inn­ar þar er lengri af­greiðslu­tími.

Laug­ar­dals­laug er mest sótta sund­laug­in í Reykja­vík, en tvær sund­laug­ar á höfuðborg­ar­svæðinu eru þó meira sótt­ar. Það eru Lága­fells­laug í Mos­fells­bæ og Kópa­vogs­laug í Kópa­vogi, en sú síðar­nefnda er mest sótta sund­laug höfuðborg­ar­svæðis­ins.

Í Reykja­vík end­ur­heimti Vest­ur­bæj­ar­laug annað sætið eft­ir að gest­ir í Sund­höll Reykja­vík­ur höfðu verið fleiri árið 2023. Gest­um í nýj­ustu laug höfuðborg­ar­svæðis­ins, Dals­laug, held­ur áfram að fjölga og voru í fyrra fleiri en gest­ir í Breiðholts­laug.

mbl.is óskaði eft­ir aðsókn­ar­töl­um í sund­laug­ar sveit­ar­fé­lag­anna sex á höfuðborg­ar­svæðinu og þar má sjá alls kon­ar áhuga­verða töl­fræði.

Gest­ir sam­tals 4,27 millj­ón­ir í fyrra

Sem fyrr seg­ir fjölg­ar gest­um í sund­laug­arn­ar yfir höfuð. Árið 2023 voru gest­ir þeirra sam­tals 4.125.353 en í fyrra voru þeir 4.270.834. Nem­ur það 3,53% fjölg­un milli ára. Íbúa­fjöldi sam­kvæmt töl­um Hag­stof­unn­ar jókst hins veg­ar á sama tíma­bili um 2% og jókst því aðsók um rúm­lega 1,5 pró­sentu­stig um­fram fólks­fjölg­un.

Flest­ar heim­sókn­ir á íbúa á Seltjarn­ar­nesi og Mos­fells­bæ

Miðað við töl­ur sveit­ar­fé­lag­anna og töl­ur Hag­stof­unn­ar voru íbú­ar á Seltjarn­ar­nesi og Mos­fells­bæ dug­leg­ast­ir að nýta sér sund­laug­arn­ar. Voru heim­sókn­ir í sund­laug­ina á Seltjarn­ar­nesi tæp­lega 42 á síðasta ári fyr­ir hvern íbúa í sveit­ar­fé­lag­inu. Stóð heim­sókna­fjöld­inn á hvern íbúa nokk­urn veg­inn í stað. Í Mos­fells­bæ voru heim­sókn­irn­ar 36,2 yfir árið fyr­ir hvern íbúa og lækkaði úr 38 heim­sókn­um árið áður.

Í Kópa­vogi voru heim­sókn­irn­ar 22,5 á hvern íbúa og fjölgaði úr 21,6 árið áður og í Hafnar­f­irði voru heim­sókn­irn­ar 20,5 og stóðu nokk­urn veg­inn í stað. Í Reykja­vík voru heim­sókn­irn­ar hins veg­ar um 13,5 á ári og stóðu í stað milli ára og 13,4 á ári í Garðabæ og fjölgaði úr 12 á ári.

Rétt er að taka fram að í svör­um Hafn­ar­fjarðarbæj­ar og Mos­fells­bæj­ar kom fram að inn í aðsókn­ar­töl­un­um er tal­inn með fjöldi gesta í samliggj­andi lík­ams­rækt­ar­stöðvum. Á það við um tvær af fjór­um sund­laug­um Hafn­ar­fjarðar, sem jafn­framt eru aðsókn­ar­hæstu sund­laug­arn­ar, og Lága­fells­laug í Mos­fells­bæ, en hún er mun aðsókn­ar­hærri en Varmár­laug í Mos­fells­bæ. Ekki komu svör frá öðrum sveit­ar­fé­lög­um hvort töl­ur samliggj­andi lík­ams­rækt­ar­stöðva teld­ust með. Hins veg­ar ætti að vera um sam­an­b­urðar­hæf­ar töl­ur að ræða milli ára inn­an hvers sveit­ar­fé­lags.

Þá er líka rétt að hafa í huga að fjöl­marg­ir íbú­ar fara yfir sveit­ar­fé­laga­mörk til að fara í sína upp­á­halds sund­laug eða sund­laug­ar sem eru nærri þeim. Þá sækja auðvitað marg­ir er­lend­ir gest­ir sund­laug­arn­ar, ekki síst miðsvæðis í Reykja­vík.

Sundlaugin á Seltjarnarnesi. Miðað við tölur sveitarfélagsins jafngildir heimsóknarfjöldi þar …
Sund­laug­in á Seltjarn­ar­nesi. Miðað við töl­ur sveit­ar­fé­lags­ins jafn­gild­ir heim­sókn­ar­fjöldi þar því að hver íbúi sveit­ar­fé­lags­ins mæti 42 á ári. Ljós­mynd/​Seltjarn­ar­nes

Mis­mun­andi gesta­hóp­ar í Hafnar­f­irði

Þegar fjöldi gesta í laug­um Hafn­ar­fjarðar í fyrra er skoðaður sést að flest­ir gesta mæta í Ásvalla­laug. Það helg­ast hins veg­ar af mikl­um fjölda sem mæt­ir þar í skóla­sund, á sundæf­ing­ar og sem áhorf­end­ur. Ef aðeins er horft til al­menn­ings þá mæta fleiri í Suður­bæj­ar­laug.

Inni í töl­um Hafn­ar­fjarðar eru heim­sókn­ir í Gym heilsu í bæði Ásvalla­laug og Suður­bæj­ar­laug.

Hafn­ar­fjörður sendi einnig yf­ir­lit yfir aðsókn síðasta ára­tug­inn og fylg­ir það hér með, enda sýn­ir það áhuga­verða þróun. Frá ár­inu 2014 fækkaði gest­um nokkuð. Botn­inn var svo far­ald­ursárið, en aðsókn­in tók svo við sér og var í fyrra á pari við það sem hún var ára­tug áður.

Fleiri gest­ir þegar af­greiðslu­tími var lengd­ur

Í bæði Ásgarðslaug og Álfta­nes­laug fjölgaði gest­um um­tals­vert á síðasta ári og voru þeir sam­tals 255 þúsund í fyrra sam­an­borið við 221 þúsund árið áður. Eru það 15,4% fleiri heim­sókn­ir milli ára. Var af­greiðslu­tími í Álft­ar­nes­laug meðal ann­ars lengd­ur í fyrra til klukk­an tíu á kvöld­in á virk­um dög­um til sam­ræm­is við Ásgarðslaug. Jók það kvöld­heim­sókn­ir í laug­ina um 64%, en til sam­an­b­urðar jókst kvöldaðsókn í Ásgarðslaug um 6,15% á sama tíma.

Í Kópa­vogi fjölgaði heim­sókn­um í bæði Sala­laug og Kópa­vogs­laug. Kópa­vogs­laug er enn bet­ur sótt en Sala­laug og voru gest­ir þar rétt tæp­lega 500 þúsund í fyrra og fjölgaði úr 468 þúsund árið áður. Gest­ir Sala­laug­ar í fyrra voru 383 þúsund sam­an­borið við 369 þúsund árið áður.

Lágafellslaug í Mosfellsbæ er næst vinsælasta laugin á höfuðborgarsvæðinu, þrátt …
Lága­fells­laug í Mos­fells­bæ er næst vin­sæl­asta laug­in á höfuðborg­ar­svæðinu, þrátt fyr­ir gest­um þar hafi fækkað ör­lítið á milli ára. mbl.is/​Eyþór

Gest­ir á Seltjarn­ar­nesi voru 192 þúsund í fyrra og stóð sá fjöldi í stað á milli ára.

Í Mos­fells­bæ voru gest­ir í Lága­fells­laug 449 þúsund í fyrra og fækkaði þeim ör­lítið, eða úr 455 þúsund árið áður. Í Varmár­laug var fjöldi gesta 33 þúsund í fyrra en hafði verið 39 þúsund árið áður. Helg­ast það þó að hluta af því að Varmár­laug var lokuð í þrjá mánuði í fyrra. Sam­tals fækkaði gest­um í laug­um Mos­fells­bæj­ar því ör­lítið, eða um 2,6% milli ára.

Vest­ur­bæj­ar­laug og Sund­höll­in berj­ast um annað sætið

Gesta­fjöldi í sund­laug­arn­ar í Reykja­vík jókst um 3% í fyrra og bæt­ist það við 5,6% þar áður. Aðsókn jókst í all­ar laug­ar í fyrra fyr­ir utan Árbæj­ar­laug og Sund­höll Reykja­vík­ur og yfir tveggja ára tíma­bil hef­ur aðsókn auk­ist í all­ar laug­ar nema Sund­höll­ina.

Hlut­falls­lega fjölgaði gest­um í fyrra mest í Dals­laug, eða um 24% milli ára. Þar á eft­ir kem­ur Klé­bergs­laug á Kjal­ar­nesi, en gest­um fjölgaði um 13,6% milli ára. Gesta­fjöldi þar er þó aðeins brot af því sem er í aðrar laug­ar, en 11.450 manns sóttu laug­ina í fyrra. Yfir tveggja ára tíma­bil hef­ur gesta­fjöldi í Klé­bergs­laug auk­ist um 45% og í Dals­laug um 42%.

Laugardalslaugin er enn með höfuð og herðar yfir aðrar sundlaugar …
Laug­ar­dals­laug­in er enn með höfuð og herðar yfir aðrar sund­laug­ar í Reykja­vík. mbl.is/​Sig­urður Bogi

Laug­ar­dals­laug­in er mest sótta laug Reykja­vík­ur og voru gest­ir þar í fyrra 443 þúsund. Næst þar á eft­ir kom Vest­ur­bæj­ar­laug með 323 þúsund gesti. Fjölgaði gest­um um 10% milli ára. Árið 2023 höfðu gest­ir í Sund­höll Reykja­vík­ur verið aðeins fleiri en í Vest­ur­bæj­ar­laug, en með fjölg­un í Vest­ur­bæj­ar­laug og fækk­un gesta í Sund­höll­ina tók Vest­ur­bæj­ar­laug aft­ur fram úr Sund­höll­inni.

Fjórða mest sótta laug Reykja­vík­ur er Árbæj­ar­laug og voru gest­ir þar 234 þúsund í fyrra. Gest­ir í Grafar­vogs­laug voru 214 þúsund í fyrra og fjölgaði um 8,2% milli ára. Gest­ir í Dals­laug voru 178 þúsund í fyrra og fjölgaði sem fyrr seg­ir um 24% milli ára. Að lok­um voru gest­ir í Breiðholts­laug 165 þúsund og fjölgaði þeim um 2,3% milli ára.

31 gest­ur upp í 1.213 gesti á dag

Til að setja heim­sókn­ar­fjöld­ann í nær­tæk­ara sam­hengi þýða heim­sókn­ar­töl­ur í Laug­ar­dals­laug að þangað komu að meðaltali 1.213 gest­ir alla daga árs­ins í fyrra. Í Vest­ur­bæj­ar­laug var dag­leg­ur gesta­fjöldi 886, í Dals­laug 486, en í Klé­bergs­laug rúm­lega 31 gest­ur.

mbl.is
Fleira áhugavert

Innlent »

Fleira áhugavert