Brýr báru ekki slökkviliðsbíla í Selárdal

Ingólfur Árni Haraldsson varðstjóri og Úlfar Örn Hjartarsson, svæðisstjóri björgunarsveitarinnar …
Ingólfur Árni Haraldsson varðstjóri og Úlfar Örn Hjartarsson, svæðisstjóri björgunarsveitarinnar á Ströndum, á vettvangi í gær. Ljósmynd/Pétur Matthíasson

Aðstæður voru erfiðar til slökkvi­starfs þegar slökkviliðsmenn börðust við gróðurelda í Selár­dal í Stein­gríms­firði á Vest­fjörðum í gær. Vinda­samt var á svæðinu og breidd­ist eld­ur­inn hratt út.

Þá báru brýr ekki slökkviliðsbíl­ana sem gerði það að verk­um að tölu­verð vega­lend var frá eld­in­um að bíl­un­um, meðan á slökkvi­starfi stóð.

Björg­un­araðgerðir voru um­fangs­mikl­ar en um 27 manns komu að aðgerðunum, sem gengu vel þrátt fyr­ir erfiðar aðstæður.

Þyrla Land­helg­is­gæsl­unn­ar var kölluð út vegna brun­ans en tek­ist hafði að ráða niður­lög­um elds­ins þegar hún kom. 

Slökkvistörf gengu líkt og í sögu.
Slökkvistörf gengu líkt og í sögu. Ljós­mynd/​Pét­ur Matth­ías­son

Einn bú­staður ná­lægt elds­upp­tök­um

Að sögn Ing­ólfs Árna Har­alds­son­ar, varðstjóra slökkviliðs Dala, Reyk­hóla og Stranda, stóðu björg­un­araðgerðir yfir í um tvær klukku­stund­ir.

Eld­ur­inn breidd­ist út yfir um tveggja hekt­ara svæði, en einn bú­staður var ná­lægt elds­upp­tök­um. Ingólf­ur seg­ir að brýnt hafi verið að tryggja að eld­ur­inn næði ekki þangað, og tókst það.

„Þetta gekk eins og í sögu, við unn­um eins og sam­held­in klukka,“ seg­ir Ingólf­ur full­ur þakk­læt­is í garð allra sem komu að aðgerðunum. 

Elds­upp­tök eru enn ókunn, að sögn Ing­ólfs.

Viðbragðslið var á sexhjólum við slökkvistörf.
Viðbragðslið var á sex­hjól­um við slökkvistörf. Ljós­mynd/​Ingólf­ur Árni Har­alds­son
Vindasamt var í Selárdal í gær.
Vinda­samt var í Selár­dal í gær. Ljós­mynd/​Ingólf­ur Árni Har­alds­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert