Sveitarfélagið Norðurþing þarf að endurskoða fyrirhugaðar fjárfestingar og framkvæmdir sem voru á áætlun í ár og hagræða í rekstri vegna yfirvofandi rekstrarstöðvunar kísilmálmversins PCC á Bakka.
Hjálmar Bogi Hafliðason, varaformaður byggðaráðs Norðurþings, segir að vonir standi til að íbúar sveitarfélagsins muni finna sem minnst fyrir hagræðingum. PCC á Bakka er stærsti einstaki greiðandi útsvars í sveitarfélaginu.
Greint var frá því í maí að tímabundin rekstrarstöðvun yrði á Bakka um miðjan júlí og að 80 starfsmönnum yrði sagt upp. Er það mikið högg fyrir sveitarfélagið.
„Eðli málsins samkvæmt mun það hafa áhrif á rekstur sveitarfélagsins þegar slíkur vinnustaður fer í tímabundna stöðvun og við vonum bara að það verði stutt. Við erum að leita leiða til að draga úr kostnaði í rekstri yfir þetta tímabil þannig að fólk finni sem minnst fyrir því. Það er ábyrgð okkar kjörinna fulltrúa og embættismanna að finna leiðir til þess og vissulega getur það haft einhvers staðar neikvæðar afleiðingar í för með sér,“ segir Hjálmar í samtali við Morgunblaðið.
Hann segir að vonir standi til að tímabundin rekstrarstöðvun PCC standi skammt yfir, vonandi bara til áramóta, en að sveitarfélagið sé undir það búið að stöðvunin vari lengur.
Framkvæmdir voru fyrirhugaðar í sveitarfélaginu fyrir 1.000 milljónir króna en ákveðið hefur verið að fresta framkvæmdum og fjárfestingum sem nema 285 milljónum króna.
Hjálmar segir mest muna um að kaupum á nýjum dráttarbát verði frestað sem og öllum stærri malbikunarframkvæmdum.
Spurður að því hverju íbúar muni einna helst finna fyrir segir hann að það séu stóru malbikunarframkvæmdirnar og einnig að fólk muni finna fyrir hagræðingu hjá velferðarsviði.
„Það er verið að leitast við að hagræða. Við erum ekki að fara í stórfelldan niðurskurð,“ segir Hjálmar. Miðað er við töluna 160 milljónir króna, hagræða á um 87 milljónir á velferðarsviði, 30 milljónir hjá slökkviliðinu, 30 milljónir í höfnum sveitarfélagsins og um 12 milljónir á fundum hjá nefndum og ráðum.
Hann segir að gera megi ráð fyrir að tekjur Hafnarsjóðs Norðurþings muni dragast saman á næstu mánuðum vegna þess að færri skip muni koma til bæjarins þegar rekstur PCC á Bakka liggur niðri.
Hjálmar segir að á sama tíma muni sveitarfélagið leita allra leiða til að auka tekjur og skapa tækifæri til atvinnuuppbyggingar á svæðinu.
„Nýta auðlindir, skapa störf og standa undir velferð í okkar öfluga samfélagi,“ segir Hjálmar. Spurður að því hvort það muni fela í sér að greiða leiðina fyrir fyrirtækin Carbfix og Heidelberg, sem sýnt hafa atvinnuuppbyggingu á Bakka áhuga, segir Hjálmar að það sé á meðal þess sem er rætt.
„Við erum að setja aukinn kraft í að skapa tækifæri svo að við séum ekki með öll eggin í sömu körfunni. Við viljum fá hingað fleiri fyrirtæki og höfum átt í góðu samtali við Landsvirkjun um að byggja upp þetta iðnaðarsvæði, öllu Íslandi til heilla,“ segir Hjálmar.
Hann bendir einnig á að talsvert hafi verið um framkvæmdir í sveitarfélaginu að undanförnu. Nú í byrjun sumars hafi verið lagt nýtt gervigras á knattspyrnuvöllinn á Húsavík og stefnt sé að því að ný áhorfendastúka á vellinum verði tekin í notkun nú í júní.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.