Kópavogsbúar beðnir um að skoða í geymslur og skúra

Lögreglan óskar eftir upptökum úr öryggis- og eftirlitsmyndavélum.
Lögreglan óskar eftir upptökum úr öryggis- og eftirlitsmyndavélum. Samsett mynd

Leit að Sig­ríði Jó­hanns­dótt­ur, 56 ára, hef­ur enn eng­an ár­ang­ur borið, en síðast er vitað um ferðir henn­ar á Digra­nes­heiði í Kópa­vogi síðdeg­is föstu­dag­inn 13. júní.

Lög­regl­an biður þau sem eru með ör­ygg­is- og eft­ir­lits­mynda­vélar á því svæði og í næsta ná­grenni að hafa sam­band svo hún geti kannað hvort þar kunni að sjást til ferða Sig­ríðar eft­ir fyrr­nefnd­an tíma.

Þetta kem­ur fram í til­kynn­ingu frá lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu.

Þá eru íbú­ar í hverf­inu og í Kópa­vogi beðnir um að skoða nærum­hverfi sitt s.s. geymsl­ur, stiga­ganga og garðskúra. Þau sem eru í for­svari fyr­ir auðu hús­næði í hverf­inu og í Kópa­vogi beðin um að skoða slíka staði.

Lög­regl­an biður einnig þau sem geta gefið upp­lýs­ing­ar um ferðir Sig­ríðar að hafa sam­band við lög­regl­una í síma 112 eða 444 1000 eða með tölvu­pósti á net­fangið 100@lrh.is

 Upp­fært kl. 16:51

Björg­un­ar­sveita­menn munu síðdeg­is í dag ganga í hús á ákveðnum radíus í kring­um heim­ili Sig­ríðar á Digra­nes­heiði og dreifa miða þess efn­is að fólk sem hafi eft­ir­lits­mynda­vél­ar sé hvatt til að fara yfir upp­tök­ur frá föstu­dags­eft­ir­miðdegi til laug­ar­dags­morg­uns. 

Á miðanum er það einnig ít­rekað að fólk skoði nærum­hverfi sitt og láti Lög­reglu vita hafi það ábend­ing­ar um málið.

Full­trúi slysa­varna­fé­lags­ins Lands­bjarg­ar greindi frá þessu í sam­tali við mbl.is í dag.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert