Engin dýr á bænum Fellshlíð í Eyjafirði sýna einkenni salmonellusýkingar eins og er. Þá voru öll sýni neikvæð sem tekin voru í síðustu viku eftir að salmonella greindist fyrr í mánuðinum.
Í tilkynningu Matvælastofnunar (MAST) segir að áður en hægt sé að lýsa bæinn lausan við sjúkdóminn og fella niður gildandi takmarkanir þurfi að taka endurtekin sýni með 30 daga millibili. Öll þurfa þau að vera neikvæð.