Orð gegn orði um það sem gerðist

Lögreglan að störfum.
Lögreglan að störfum. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Lög­regl­unni á höfuðborg­ar­svæðinu barst til­kynn­ing um að bif­reið hefði verið ekið eft­ir gang­stíg og vís­vit­andi á hjól­reiðamann og reiðhjól hans í Grafar­vogi.

Lög­regl­an ræddi bæði við hjól­reiðamann­inn og öku­mann bif­reiðar­inn­ar og var þar orð gegn orði um at­b­urðarás­ina.

Hjól­reiðamaður­inn slasaðist ekki og hjólið virt­ist óskemmt. Málið er til rann­sókn­ar, að því er seg­ir í dag­bók lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu vegna verk­efna frá  klukk­an 17 í gær til kl. 5 í morg­un.

Ung­menni vopnuð hnífi í miðbæn­um

Til­kynnt var um ung­menni vopnuð hnífi á gangi í miðbæ Reykja­vík­ur. Lög­regl­an leitaði þeirra í kjöl­farið en þau fund­ust ekki. Aðeins ein til­kynn­ing barst um ung­menn­in og dró því lög­regl­an úr viðbragði þegar ekk­ert spurðist frek­ar til þeirra.

Ökumaður var hand­tek­inn grunaður um ölv­unar­akst­ur á sendi­bif­reið í Breiðholti. Maður­inn blés 2,27‰ sem er veru­lega mikið, að því er seg­ir í dag­bók­inni. Hann var lát­inn laus að lok­inni blóðsýna­töku.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert