Helgi Magnús Gunnarsson fráfarandi vararíkissaksóknari hefur hafnað flutningi í embætti aðstoðarríkislögreglustjóra. Hann lætur því af störfum og fer nú á lögbundin eftirlaun, níu árum fyrr en venja er.
Dómsmálaráðuneytið sendi frá sér tilkynningu um málið í gær en þar þakkar Þorbjörg Sigríður Gunnlaugsdóttir dómsmálaráðherra Helga fyrir gott starf.
„Hann er góður lögfræðingur og málflytjandi og ég óska honum velfarnaðar í leik og starfi,“ segir dómsmálaráðherra.
„Ég erfði þetta mál frá fyrirrennara mínum og gerði mitt besta til að leysa það faglega og í sátt við alla hlutaðeigandi,“ segir í tilkynningunni.
Eins og fjallað hefur verið um óskaði Sigríður J. Friðjónsdóttir ríkissaksóknari eftir því síðasta sumar að Helgi yrði leystur frá störfum tímabundið vegna tjáningar hans og orðfæris í opinberri umræðu en hún taldi háttsemi hans ósæmilega og ósamrýmanlega starfi hans.
Guðrún Hafsteinsdóttir þáverandi dómsmálaráðherra komst að þeirri niðurstöðu að ekki væri tilefni til þess en þegar Helgi mætti aftur til starfa eftir veikindaleyfi í desember fékk hann engin verkefni.
Birti ríkissaksóknari tilkynningu þess efnis að hún mæti það sem svo að Helga Magnús skorti almennt hæfi til að gegna embætti vararíkissaksóknara og hún myndi þar af leiðandi ekki úthluta honum neinum verkefnum.
Helgi hefur því verið í starfi vararíkissaksóknara, og fengið full laun greidd, í næstum því heilt ár án þess að sinna nokkrum verkefnum fyrir embættið.
Í svari dómsmálaráðuneytisins við fyrirspurn Morgunblaðsins um hvernig starfslokum Helga sé háttað, þar sem hann sé 61 árs og eigi um níu ár eftir af æviráðningunni, kemur fram að ekki hafi verið gerður starfslokasamningur. Hann eigi rétt á eftirlaunum í samræmi við 4. mgr. 20. gr. stjórnarskrárinnar.
Fer Helgi Magnús því nú á eftirlaun, eins og hann væri að hætta sjötugur að aldri.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.