Mannlaus bifreið á hvolfi

Lögreglan sinnti sýnilegri löggæslu á þjóðhátíðardaginn í dag.
Lögreglan sinnti sýnilegri löggæslu á þjóðhátíðardaginn í dag. mbl.is/Hari/mbl.is/Eggert

Mann­laus bif­reið á hvolfi, þjófnaður og inn­brot í versl­un voru meðal verk­efna lög­regl­unn­ar á höfuðborg­ar­svæðinu á þjóðhátíðar­degi okk­ar Íslend­inga.

Í dag­bók lög­reglu seg­ir að „mikið mann­líf og mik­il gleði,“ hafi verið víða um höfuðborg­ina.

Auk fram­an­greindra verk­efna aðstoðaði lög­regla borg­ara í ann­ar­legu ástandi og sinnti ábend­ingu um sam­kvæm­is­há­vaða. 

Þá barst einnig beiðni um aðstoð vegna farþega sem neitaði að greiða leigu­bíl­stjóra.

Sam­kvæmt dag­bók lög­regl­unn­ar sit­ur eng­inn í fanga­geymslu eft­ir dag­inn enn sem komið er.

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert