Jóhanna Björg Jóhannsdóttir var um helgina kjörin nýr forseti Skáksambands Íslands á aðalfundi sambandsins sem fór fram á Blönduósi. Skáksambandið var stofnað í læknisbústaðnum á Blönduósi í júnímánuði árið 1925.
Í forsetakjörinu atti hún kappi við Kristján Örn Elíasson og hafði þar betur með nokkrum yfirburðum. Jóhanna hlaut 40 atkvæði en Kristján hlaut 16. Jóhanna tekur við forsetaembættinu af Gunnari Björnssyni sem hefur verið forseti sambandsins frá 2009.
Gustað hefur um Skáksambandið og fjárhag þess upp á síðkastið en fjallað var um það í Morgunblaðinu á laugardaginn að skoðunarmenn reikninga sambandsins teldu samkvæmt greinargerð sinni tilefni til þess að hafin yrði rannsókn á rekstri og bókhaldi Skáksambandsins. Jafnframt lögðu skoðunarmennirnir það til að ársreikningur sambandsins yrði ekki samþykktur.
Jóhanna segir í samtali við Morgunblaðið að ákveðið hafi verið á aðalfundinum að fresta afgreiðslu ársreiknings sambandsins og verður hann því ekki tekinn til afgreiðslu fyrr en á framhaldsaðalfundi sem fer að sögn Jóhönnu fram í júlímánuði.
„Við tökum athugasemdir skoðunarmanna sambandsins alvarlega en teljum að sumar þeirra séu byggðar á ófullnægjandi upplýsingaöflun. Við munum leggja til úrbætur þar sem við á. Það er samt sem áður skýrt að skoðunarmennirnir höfðu ekki leyfi stjórnar til þess að birta greinargerðina enda innihélt hún persónuupplýsingar,“ segir Jóhanna um það sem kom fram í greinargerðinni.
Hún segir ljóst að ársreikningurinn verði samþykktur á framhaldsaðalfundinum og að sambandið hafi ekki áhyggjur af málinu. Alveg ljóst sé að ekki er um fjársvik né aðra saknæma háttsemi að ræða.
Áherslur Jóhönnu í embættinu liggja að hennar sögn í því að efla skákstarfið sérstaklega með áherslu á þátttöku barna og kvenna í skákíþróttinni en einnig segir Jóhanna að áhersla hennar sé á það að efla þátttöku landsbyggðarinnar. Jóhanna segir að aldrei hafi fleiri börn á landinu teflt og það þurfi að halda áfram að byggja ofan á það sem vel hafi verið gert.
Opna Íslandsmótið fer nú fram á Blönduósi til þess að fagna 100 ára afmæli sambandsins. Þar gefst erlendum skákmönnum kostur á því að vera með en meðal keppanda er hollenski stórmeistarinn Ivan Sokolov. Sigurvegari mótsins verður krýndur skákmeistari Íslands 2025.
Ertu ekki með notendaaðgang? Fara í nýskráningu.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar.
Til þess að lesa hana þarftu að skrá þig inn.
Þú ert innskráð(ur) sem ... en ert ekki með áskrift.
Aðgangur að þessari frétt í fullri lengd krefst áskriftar að Morgunblaðinu, rafræns aðgangs á borð við vikupassa eða séráskriftar að viðkomandi efnisflokki á mbl.is.