Aldrei spurður út í umhverfismál

Jón Gnarr furðar sig á því hvers vegna hann hefur …
Jón Gnarr furðar sig á því hvers vegna hann hefur aldrei verið spurður út í umhverfismál. mbl.is/Eyþór Árnason

Jón Gn­arr seg­ist aldrei hafa verið spurður út í um­hverf­is- og lofts­lags­mál­in í kosn­inga­bar­átt­unni sinni til for­seta Íslands. Um­hverf­is­mál­in séu „dauðans al­vara.“

Jóni virt­ist vera heitt í hamsi í þegar umræða spannst um hags­muni ungs fólks í kapp­ræðum Vís­is í kvöld. Þar rædd­ust á þeir sex fram­bjóðend­ur sem mæl­ast hæst­ir í fylg­is­könn­un­um.

Jón benti á að hann hafi margoft verið spurður út í mál­skots­rétt for­set­ans, sem hann myndi senni­lega sjald­an þurfa að beita. En hafi hann verið spurður út í um­hverf­is­mál „sem eru dauðans al­vara.“

Halla Tóm­as­dótt­ir skaut inn í sam­talið að fram­bjóðend­ur hefðu verið spurðir út í „upp­á­halds­mat­inn“ sinn. 

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert