Verðum að keyra af stað á hugsjónunum

Staðan í skoðanakönnunum er ekki góð, segir Lenya Rún Taha Karim, oddviti Pírata í Reykjavíkurkjördæmi norður, sem telur flokkinn þó eiga fullt inni og finnur mikinn meðbyr í kosningabaráttunni.

Telur hún að ákveðinn hljómgrunnur sé fyrir aðkomu og skoðunum ungs fólks í samfélaginu.

Skrúfa fyrir hvatana

Lenya kveður stefnuskrá Pírata mjög stóra og nefnir húsnæðismál, efnahagsmál og hvernig eigi að stemma stigu við verðbólgunni.

Í húsnæðismálum vilja Píratar flýta fyrir uppbyggingu með byggingu bráðabirgðahúsnæðis, skrúfa fyrir hvatana þegar kemur að skammtímaútleigu og bjóða fólki frelsi á milli þess að kaupa eða leigja.

„Það sem Píratar eru svolítið góðir í og við þurfum að endurvekja er að við erum með ákveðnar hugsjónir. Við höfum verið að tapa okkur aðeins í smáatriðunum og verðum að fara að keyra af stað á hugsjónunum.“

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert