Andrés Magnússon
Viðreisn er í talsverðri sókn og mögulega í oddastöðu við myndun ríkisstjórnar verði kosningaúrslit í einhverju samræmi við nýja könnun Prósents fyrir Morgunblaðið. Miðað við niðurstöðurnar gæti Viðreisn bæði myndað stjórn til vinstri og til hægri.
Annars vegar gæti Viðreisn valið vinstristjórn með Samfylkingu og Framsókn eða Sósíalistum, sem miðað við könnunina hefði 34 manna meirihluta. Á hinn bóginn gæti Viðreisn einnig myndað hægristjórn með Miðflokki og Sjálfstæðisflokki, sem einnig hefði 34 þingmenn að baki sér.
Ljóst er að Viðreisn líst betur á vinstristjórn, en í gær kvað Þorgerður Katrín Gunnarsdóttir formaður Viðreisnar Sjálfstæðisflokkinn ekki „stjórntækan á landsvísu“. Þau orð lét hún falla í Grjótkastinu, hlaðvarpi Björns Inga Hrafnssonar, þar sem hún og Kristrún Frostadóttir formaður Samfylkingar voru gestir.
Nánar má lesa um málið í Morgunblaðinu í dag, laugardag.