Reksturinn hófst í blokkaríbúð í Breiðholti

Skúli Jóhann Björnsson, eigandi Sportís.
Skúli Jóhann Björnsson, eigandi Sportís. mbl.is/Kristinn Magnússon

Útivist­ar-, íþrótta- og lífstíls­versl­un­in Spor­tís er rót­gró­in, fjöl­skyldu­rek­in versl­un og heild­versl­un í Skeif­unni 11. Fyr­ir­tækið hef­ur verið starf­rækt í 40 ár og verið leiðandi í inn­flutn­ingi og sölu á hágæða vörumerkj­um á sviði úti­vist­ar og íþrótta.

„Við hjón­in byrjuðum þetta í lít­illi blokka­r­í­búð í Breiðholti fyr­ir 40 árum,“ seg­ir Skúli Jó­hann Björns­son sem á og rek­ur Spor­tís ehf ásamt eig­in­konu sinni, Önnu Sig­ríði Garðars­dótt­ur.

Spor­tís var lengi vel ein­göngu lít­il heild­versl­un en að sögn Skúla hef­ur starf­sem­in breyst og stækkað með tíð og tíma.

„Vörumerki eins og L.A. Gear, O'­NEILL, Os­h­Kosh B'Gosh barna­föt­in, Mat­in­bleu krumpugall­arn­ir og fleira sem marg­ir muna ef­laust eft­ir var al­veg gríðarlega vin­sælt hjá okk­ur,“ minn­ist Skúli.

Verslun Sportís er staðsett í Skeifunni 11 og er full …
Versl­un Spor­tís er staðsett í Skeif­unni 11 og er full af flott­um og spenn­andi vör­um fyr­ir alla fjöl­skyld­una. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Fyr­ir tveim­ur árum flutt­um við úr Mörk­inni og í stærra og betra hús­næði í Skeif­unni 11. Versl­un­ar­rýmið sem við vor­um í áður hafði svo gott sem sprungið utan af starf­sem­inni,“ lýs­ir hann, enda vöru­úr­valið af fjöl­breyttu tagi og í takt við aukna aðsókn al­menn­ings í hreyf­ingu og úti­vist.

„Ísland er í sjálfu sér ekki stór markaður. Ef maður ætl­ar að ná ár­angri í rekstri er mik­il­vægt að vera með breitt og gott vöru­úr­val. Það er ekki síður mik­il­vægt að geta annað eft­ir­spurn,“ bend­ir hann á og seg­ir lag­er­stöðu hjá Spor­tís góða öll­um stund­um þar sem gætt er að því að all­ir lit­ir og stærðir séu fá­an­leg­ar hverju sinni. 

„Þar sköp­um við okk­ur sér­stöðu. Þú þarft að ein­beita þér að viðskipta­vin­un­um og hans þörf­um þegar þú ert í rekstri. Okk­ur hef­ur tek­ist það og verið svo lán­söm að eign­ast góðan og dygg­an hóp viðskipta­vina sem veit að hverju hann geng­ur þegar hann kem­ur til okk­ar. Það finn­um við mjög sterkt í gegn­um okk­ar viðskipta­vini.“

Vönduð vörumerki eru einkennandi í Sportís.
Vönduð vörumerki eru ein­kenn­andi í Spor­tís. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Vandað vöru­úr­val 

Spor­tís er þekkt fyr­ir frá­bært vöru­úr­val og hágæða vörumerki. Ber þar helst að nefna Asics, Can­ada Goose, Hoka, Ca­sall, Kari Traa, D_b_, New Bal­ance, Patagonia, Speedo og Reima, GoPro, Nu­keproof, Sweet Protecti­on, Gi­ant, Nitrosnow­bo­ards, Volcom, Lob­stersnow­bo­ards, Troy Lee designs, svo ein­hver séu nefnd.   

„Hjá okk­ur hef­ur alltaf verið lögð áhersla á að vera með vandaðar og góðar vör­ur frá þekkt­um vörumerkj­um og það hef­ur lánast býsna vel að ná því fram,“ seg­ir Skúli sem hef­ur kapp­kostað að veita viðskipta­vin­um Spor­tís framúrsk­ar­andi þjón­ustu og góðar vör­ur á hag­stæðu verði. 

Skúli seg­ir val á vörumerkj­um ein­skorðast við gæði hvers og eins þeirra. 

Skúli segir ekkert lát vera á vinsældum á skóm frá …
Skúli seg­ir ekk­ert lát vera á vin­sæld­um á skóm frá Asics og Hoka. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Can­ada Goose er mjög virt merki alls staðar í heim­in­um og það fá færri en vilja. Við höf­um verið þess heiðurs aðnjót­andi að hafa selt það síðan 1994 og Ca­sall höf­um við verið með í sölu frá 1988. Þetta eru hágæða vörumerki sem hafa gengið vel í sölu hér á landi,“ seg­ir hann og bend­ir á fleiri vin­sæl merki sem fást í versl­un­inni.

„Skórn­ir frá Hoka hafa slegið öll sölu­met. Þeir hafa verið gríðarlega vin­sæl­ir og það fer ekk­ert dvín­andi.“  Hann seg­ir skóna frá Asics einnig vera mjög vin­sæla en Asics er eitt elsta íþrótta­vörumerki heims.

Kuldi ný­leg deild und­ir Spor­tís

Líkt og fram hef­ur komið flutti Spor­tís í stærra versl­un­ar­rými árið 2021. Versl­un­inni var þá skipt upp í tvær deild­ir sem leggja mis­mun­andi áhersl­ur á vöru­úr­val og vörumerki. Spor­tís seg­ir hann búa yfir fjöl­breyttu úr­vali af íþrótta- og lífstílsvör­um á meðan Kuldi býður upp á allt fyr­ir úti­vistar­ævin­týr­in.

„Kuldi höfðar meira til reiðhjóla- og úti­vistar­fólks sem vill vandaðan og góðan búnað í fjalla­hjóla­mennsku og á snjó­brett­um seg­ir Skúli og bæt­ir við að Kuldi er ein ör­fárra versl­ana í heim­in­um sem sel­ur vörumerkið Lob­ster, sem er vörumerki úr smiðju bræðranna Hall­dórs og Ei­ríks Helga­sona, stærstu snjó­bretta­hetja sem Ísland hef­ur getið af sér.

„Þetta er nýtt og spenn­andi merki. Við erum stolt af því að vinna með jafn ein­stök­um mönn­um sem standa að baki þessu vörumerki og hafa helgað snjó­brett­inu líf sitt.“ 

Sportís selur reiðhjól af öllum stærðum og gerðum.
Spor­tís sel­ur reiðhjól af öll­um stærðum og gerðum. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

Ný og not­enda­væn net­versl­un

Í síðasta mánuði leit ný og stór­glæsi­leg vef­versl­un Spor­tís dags­ins ljós. Skúli seg­ir mik­il­vægt að versl­an­ir búi yfir góðri og not­enda­vænni vef­versl­un til að auka þjónu­stigið.

„Net­versl­un hef­ur verið að aukast jafnt og þétt und­an­far­in ár. Með henni gef­um við viðskipta­vin­um okk­ar tæki­færi á að nálg­ast upp­lýs­ing­ar um vör­ur, skanna vöru­úr­val og verð áður en það kem­ur til okk­ar í versl­un­ina til að skoða og máta og klára kaup­in,“ seg­ir hann.

Sportís og Kuldi bjóða upp á gott úrval af öllu …
Spor­tís og Kuldi bjóða upp á gott úr­val af öllu sem teng­ist úti­vist og æv­in­týr­um. mbl.is/​Krist­inn Magnús­son

„Það er mik­il aukn­ing á öll­um stöðum hjá okk­ur, í vef­versl­un, heild­versl­un­inni og í versl­un­inni sjálfri. Þetta er liður í því að bæta þjón­ustu við viðskipta­vini okk­ar og ekki síst við lands­byggðina, auka vörumerkja­vit­und og svo margt annað,“ seg­ir Skúli.

„Vef­versl­un­in hef­ur langt því frá verið að taka eitt­hvað yfir líkt og marg­ir óttuðust. Þetta helst allt í hend­ur og ein­fald­ar viðskipta­vin­um aðgengi að þeim góðu vör­um sem við höf­um upp á að bjóða.“

Smelltu hér til að skoða nýja og glæsi­lega vef­versl­un Spor­tís.  

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert