„Leikföng sem hitta í mark“

Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir, markaðsstjóri MiniPlay.is.
Guðbjörg Una Hallgrímsdóttir, markaðsstjóri MiniPlay.is. mbl.is/Eggert Jóhannesson

Barna­vöru­versl­un­in MiniPlay.is er fjöl­skyldu­fyr­ir­tæki sem sér­hæf­ir sig í sölu á fal­leg­um og góðum barna­vör­um sem hannaðar eru með það fyr­ir aug­um að auka sköp­un­ar­kraft og ímynd­un­ar­afl yngri kyn­slóðar­inn­ar.

Versl­un MiniPlay.is er staðsett í Tóna­hvarf 10 í Kópa­vogi og þar er að finna fjöl­breytt úr­val af barna­vör­um frá vönduðum vörumerkj­um sem tryggja bestu mögu­leg gæði fyr­ir börn­in.

„Þær barna­vör­ur og leik­föng sem við hjá MiniPlay.is bjóðum upp á ýta und­ir op­inn leik hjá börn­um þannig að þau nýta sköp­un­ar­kraft­inn sinn í gegn­um leik. Þess­ar vör­ur geta meðal ann­ars stuðlað að auknu sjálfs­trausti, hreyfi­færni, jafn­vægi og fleira hjá börn­um,“ seg­ir Guðbjörg Una Hall­gríms­dótt­ir, markaðsstjóri MiniPlay.is. 

Verslunarrými MiniPlay.is í Tónahvarf 10 í Kópavogi er rúmgott og …
Versl­un­ar­rými MiniPlay.is í Tóna­hvarf 10 í Kópa­vogi er rúm­gott og glæsi­legt. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Að sögn Guðbjarg­ar hef­ur versl­un­in vaxið mikið und­an­farið og úr­valið auk­ist. „Í dag erum við með fjöl­breytt úr­val af barna­vör­um, leik­föng­um og gjafa­vöru fyr­ir börn á öll­um aldri,“ seg­ir hún. 

„Við erum sí­fellt að bæta við okk­ur nýj­um vör­um og vörumerkj­um. Einnig eru vörumerk­in sem við erum að vinna með sí­fellt að auka vöru­úr­valið og koma með spenn­andi nýj­ung­ar.“

Vönduð vörumerki og vin­sæl­ar vör­ur 

Hjá MiniPlay.is er rík áhersla lögð á að bjóða upp á vandað vöru­úr­val frá vörumerkj­um sem hafa um­hverf­is­sjón­ar­mið til hliðsjón­ar við vöru­fram­leiðslu. Ber helst að nefna vörumerki á borð við Katehaa og Wig­iwama sem hvort tveggja eru fram­leidd í Lett­landi þar sem ströngustu gæðaskil­yrðum er fram­fylgt.

„Við bjóðum upp á fjöl­breytt úr­val af vör­um frá nokkr­um vörumerkj­um sem fram­leiða vör­ur sín­ar úr hágæða efni með til­liti til um­hverf­is­ins og eru án allra eit­ur- og of­næm­is­vald­andi efna,“ út­skýr­ir Guðbjörg.

Baunapúðarnir frá Wigiwama eru mjög vinsælir í barnaherbergið.
Bauna­púðarn­ir frá Wig­iwama eru mjög vin­sæl­ir í barna­her­bergið. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Barna­vör­urn­ar frá MiniPlay.is eru sér­lega skap­andi og sniðugar en þær eru ekki síður smekk­leg­ar inn í barna­her­bergið. Sam­kvæmt Guðbjörgu eru vin­sæl­ustu vör­ur versl­un­ar­inn­ar trampólín, klif­ur­grind­ur, bauna­púðar og hlaupa­hjól. All­ar þess­ar vör­ur eiga það sam­eig­in­legt að auka þroska­færni barna og vera skraut­prýði barna­her­bergja í senn. 

„Fyrsta vörumerkið sem við tók­um inn er Katehaa sem fram­leiðir fal­leg­ar klif­ur­grind­ur úr gegn­heil­um við fyr­ir börn. Allt er fram­leitt í Lett­landi og upp­fyll­ir ströngustu ör­ygg­is- og gæðastaðla,“ bend­ir hún á og seg­ir vörumerkið Wig­iwama hafa komið í kjöl­farið.

„Svo tók­um við Wig­iwama inn en það er einnig frá Lett­landi og fram­leiðir ein­stak­lega fal­lega bauna­púða og fleira fyr­ir börn. Fyrsta send­ing seld­ist upp hjá okk­ur á mettíma og fór­um við í fram­haldi af því að bæta við öðrum skemmti­leg­um vörumerkj­um og auka vöru­úr­valið jafnt og þétt.“

MiniPlay.is leggur áherslu á leikföng sem efla sköpunargáfu og þroskafærni …
MiniPlay.is legg­ur áherslu á leik­föng sem efla sköp­un­ar­gáfu og þroska­færni barna. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

Gagn­leg­ar og gull­fal­leg­ar gjaf­ir

Mark­mið MiniPlay.is er að virkja sköp­un­ar­gleði og ímynd­un­ar­afl barna, viðhalda for­vitni, stuðla að bættu sjálfs­trausti og auka þroska­færni þeirra með því að bjóða upp á gott úr­val barna­vara og leik­fanga sem búa yfir þess­um eig­in­leik­um. 

Vör­urn­ar eru vin­sæl­ar gjaf­ir og henta við öll til­efni, enda fátt jafn skemmti­legt og að gefa nyt­sam­leg­ar og ný­stár­leg­ar gjaf­ir sem gleðja augað og efla sköp­un­ar­gáf­una á sama tíma.

Vörurnar frá MiniPlay.is eru umhverfisvottaðar og án allra eitur- og …
Vör­urn­ar frá MiniPlay.is eru um­hverf­is­vottaðar og án allra eit­ur- og of­næm­is­valda. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son

„Hjá okk­ur færðu vör­ur sem munu hitta í mark hjá barn­inu,“ seg­ir Guðbjörg.

Smelltu hér til að skoða vöru­úr­valið í vef­versl­un MiniPlay.is - hægt er að panta all­ar vör­ur í gegn­um vef­versl­un og fá heimsend­ingu um allt land.

Einnig tek­ur starfs­fólk MiniPlay.is vel á móti þér í Tóna­hvarfi 10 í Kópa­vogi - kíktu við!

Í versluninni er að finna fjölbreytt úrval af fallegum gjöfum …
Í versl­un­inni er að finna fjöl­breytt úr­val af fal­leg­um gjöf­um handa börn­um við öll til­efni. mbl.is/​Eggert Jó­hann­es­son
mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert