Traust fasteignasala á Spáni í meira en 40 ár

Sólarfasteign er umboðsaðili fasteignasölunnar MASA International og hefur frá árinu …
Sólarfasteign er umboðsaðili fasteignasölunnar MASA International og hefur frá árinu 2001 þjónustað Íslendinga við fasteignakaup á Costa Blanca-svæðinu á Spáni. Ljósmynd/MASA International

„Við bjóðum upp á eitt mesta úr­val fast­eigna á Costa Blanca-svæðinu á Spáni,“ seg­ir Jón­as H. Jónas­son, lög­gilt­ur fast­eigna­sali hjá Sólarfa­st­eign.

Sólarfa­st­eign er umboðsaðili fyr­ir fast­eigna­söl­una MASA In­ternati­onal sem hef­ur verið í far­ar­broddi á Costa Blanca-svæðinu, sem Íslend­ing­ar þekkja sem Tor­revieja-svæðið, á Spáni í yfir 40 ár.

„Veður­sæld­in og af­slappaðri lífs­máti er það helsta sem heill­ar Íslend­inga. Ásamt hag­stæðara verðlagi og góðu heil­brigðis- og skóla­kerfi - og ekki skemma hrein­ar strend­ur fyr­ir,“ seg­ir Stefán Ant­ons­son, lög­gilt­ur fast­eigna­sali hjá Sólarfa­st­eign. „Spánn er til­val­inn staður til að dvelja á til skemmri eða lengri tíma.“   

Mennirnir að baki Sólarfasteign: Stefán Antonsson, löggiltur fasteignasali, Jónas H. …
Menn­irn­ir að baki Sólarfa­st­eign: Stefán Ant­ons­son, lög­gilt­ur fast­eigna­sali, Jón­as H. Jónas­son, lög­gilt­ur fast­eigna­sali, og Jón Bjarni Jóns­son, fast­eignaráðgjafi. mbl.is/​Arnþór Birk­is­son

All­ar teg­und­ir fast­eigna á skrá

Sólarfa­st­eign og MASA In­ternati­onal hafa átt í far­sælu sam­starfi frá ár­inu 2001 og í sam­ein­ingu þjón­ustað ís­lenska fast­eigna­kaup­end­ur á Spáni all­ar göt­ur síðan. Að sögn Jónas­ar og Stef­áns hafa Íslend­ing­ar löngu fallið fyr­ir Costa Blanca-svæðinu enda segja þeir svæðið búa yfir mörg­um kost­um fyr­ir þá sem kjósa að eign­ast sitt annað heim­ili utan land­stein­ana.

„Mark­hóp­ur­inn hef­ur verið að breyt­ast mikið sein­ustu árin. Áður fyrr var aðalviðskipta­hóp­ur­inn fólk sem var að fara á eft­ir­laun en í dag hef­ur kaup­enda­hóp­ur­inn verið að yngj­ast mikið og eru marg­ir sem sjá ákveðið tæki­færi falið í því að kaupa fast­eign sem fjár­fest­ingu,“ seg­ir Jón­as og bend­ir á að sér­hæðir í litl­um fjöl­býl­is­hús­um hafi verið sér­lega vin­sæl­ar síðustu ár. Sólarfa­st­eign og MASA bjóða þó upp á all­ar teg­und­ir eigna, allt frá litl­um íbúðum í fjöl­býl­is­hús­um til rúm­góðra ein­býl­is­húsa utan þétt­býl­is.

„Við bjóðum upp á alla flór­una og höf­um því eitt­hvað fyr­ir alla á sölu­skrá en oft­ast er um ný­bygg­ing­ar að ræða. Það eru að koma inn ný svæði bæði fyr­ir norðan og sunn­an Tor­revieja. Fyr­ir norðan er verið að byggja skemmti­leg­ar eign­ir í Villajoyosa sem er á milli Alican­te og Benidorm – þar sem er mjög stutt á strönd­ina. Fyr­ir sunn­an þá eru það svæði eins og Lo Pagan, Tor­re de la Horra­dada. Svo er nýtt verk­efni sem heit­ir Santa Rosalia Lake, sem er virki­lega spenn­andi kost­ur ná­lægt Mar Men­or,“ út­skýr­ir Stefán og seg­ir marga spenn­andi kosti í boði.

Sólarfasteign er með allar tegundir fasteigna á skrá, allt frá …
Sólarfa­st­eign er með all­ar teg­und­ir fast­eigna á skrá, allt frá litl­um íbúðum í fjöl­býl­is­hús­um til stórra ein­býl­is­húsa úti í sveit. Ljós­mynd/​MASA In­ternati­onal

320 sól­ar­dag­ar á ári og meiri kaup­mátt­ur

„Costa Blanca-svæðið er talið eitt það allra veður­sæl­asta á Spáni. Með yfir 320 sól­ar­daga á ári, frá­bær­ar strend­ur og fjöld­ann all­an af golf­völl­um sem finna má víða. Það eru fjöl­marg­ir kost­ir í boði fyr­ir golfá­huga­fólk á þessu svæði, til dæm­is við golf­völl­inn Las Col­in­as,“ seg­ir Jón­as og held­ur áfram:

„Allt sem lít­ur að dag­legu lífi er mun ódýr­ara en hér heima. Kaup­mátt­ur Íslend­inga er meiri á Spáni og aðilar geta lifað mjög góðu lífi á Costa Blanca. Flogið er viku­lega eða oft­ar til Alican­te allt árið um kring en einnig er auðvelt að kom­ast til Alican­te með tengiflugi,“ lýs­ir hann og seg­ir ferðalagið til Alican­te frá Íslandi vera mjög ein­falt og þægi­legt sem er mik­ill kost­ur þegar fast­eigna­kaup í öðru landi eru í kort­un­um.

„Við bjóðum viðskipta­vin­um okk­ar upp á skoðun­ar­ferðir til Spán­ar allt árið um kring. Þær eru sér­sniðnar fyr­ir hvern og einn kaup­anda og geta staðið í um fjóra til sex daga. Þá eru hent­ug­ar eign­ir skoðaðar á hinum ýmsu svæðum á Costa Blanca sem hver hef­ur sitt sér­kenni og upp­fyll­ir ósk­ir viðskipta­vin­ar­ins hverju sinni,“ seg­ir Jón Bjarni, fast­eignaráðgjafi hjá Sólarfa­st­eign, og nefn­ir að kostnaður á um­rædd­um skoðun­ar­ferðum sé 59.900 ís­lensk­ar krón­ur á mann þar sem flug, hót­el og veit­ing­ar á meðan á ferð stend­ur sé innifalið í verðinu.

Kaupendahópurinn hefur verið að yngjast mikið á undanförnum árum og …
Kaup­enda­hóp­ur­inn hef­ur verið að yngj­ast mikið á und­an­förn­um árum og marg­ir sem líta á fast­eigna­kaup utan land­stein­ana sem fjár­fest­ingu inn í framtíðina. Ljós­mynd/​MASA In­ternati­onal

Traust og ör­ugg fast­eignaviðskipti

Hátt þjón­ustu­stig og traust viðskipti er það sem helst ein­kenn­ir MASA In­ternati­onal og umboðsaðilann hér á landi, Sólarfa­st­eign. Þeir Jón­as og Stefán segja aðkomu Sólarfa­st­eign­ar mjög mik­il­væga fyr­ir Íslend­inga í skoðunar- og kaup­ferl­inu vegna þess hversu frá­brugðið spænska ferlið er hinu ís­lenska en ekki síður vegna tungu­máls.

„Fyr­ir þá sem ætla að gera þetta allt sjálf­ir þá get­ur það reynst mjög flókið. Ferlið við að kaupa er allt öðru­vísi en hér á Íslandi. Tungu­mála­erfiðleik­ar geta einnig sett strik í reikn­ing­inn og ef kaup­and­inn ætl­ar að gera hlut­ina upp á eig­in spýt­ur í gegn­um hverf­is­fa­st­eigna­sölu þarna úti þá get­ur hann verið að bjóða hætt­unni heim,“ seg­ir Stefán.

Ferl­inu sjálfu lýsa þeir í stuttu máli þannig að kaup­end­ur þurfi að stofna spænska kenni­tölu í gegn­um NIE-kerfið. Því næst þurfi að stofna til bankaviðskipta, fá láns­hæfn­ismat og sækja í kjöl­farið um lán. Þessu kunni að fylgja mik­il skriffinnska og papp­írs­vinna sem kaup­end­ur al­farið sleppa við ef fast­eign­ir eru keypt­ar í gegn­um Sólarfa­st­eign og MASA In­ternati­onal.

„Þess­ir hlut­ir eru all­ir innifald­ir í okk­ar þjón­ustu og við fylgj­um kaup­end­um alla leið í ferl­inu og höld­um þeim upp­lýst­um all­an tím­ann,“ bend­ir Stefán á. 

Veðursæld, afslappaðri lífsmáti og hagstæðara verðlag er það sem heillar …
Veður­sæld, af­slappaðri lífs­máti og hag­stæðara verðlag er það sem heill­ar Íslend­inga mest við að dvelja til lengri tíma á Spáni. Ljós­mynd/​MASA In­ternati­onal

Gæðastimp­ill og gott orðspor

Fast­eigna­sal­an MASA In­ternati­onal hef­ur getið sér gott orðspor á meðal Evr­ópu­búa síðustu ára­tug­ina. Traust og ör­ugg fast­eignaviðskipti skipta þar sköp­um en ekki síður sú framúrsk­ar­andi þjón­usta sem ein­kenn­ir starf­sem­ina.

„MASA In­ternati­onal er ein af fáum fast­eigna­söl­um á Costa Blanca sem eru með gæðastaðal­inn ISO 9001. Hann er mjög erfitt að fá og mun erfiðara er að halda hon­um,“ seg­ir Jón­as.

„Hátt þjón­ustu­stig við viðskipta­vini er okk­ar aðals­merki. Eft­ir að kaup hafa farið fram þá tek­ur svo­kallað eft­ir­sölu­teymi MASA In­ternati­onal við kaup­end­um. All­ir kaup­end­ur fá sinn eig­in þjón­ustu­full­trúa sem ann­ast allt fyr­ir þá í ferl­inu, er með þeim við af­hend­ingu á eign­inni og aðstoðar með það sem til­heyr­ir flutn­ing­um. Sami full­trú­inn er kaup­end­um inn­an hand­ar í allt að sex mánuði eft­ir það,“ seg­ir Stefán. 

„Svo má ekki gleyma því að MASA In­ternati­onal er með svo­kallað „lowest price guar­an­tee“ sem trygg­ir að ef þú finn­ur sömu eign á lægra verði en það sem þú kaup­ir hana á þá verður þér end­ur­greitt í sam­ræmi við það,“ bæt­ir Jón­as við og hvet­ur sólþyrsta og æv­in­týra­gjarna Íslend­inga í fast­eigna­hug­leiðing­um á Spáni að hafa sam­band við Sólarfa­st­eign.

„Þú munt ekki sjá eft­ir því!“

Smelltu hér til að fara á heimasíðu Sólarfa­st­eign.is

mbl.is
Fleira áhugavert
Fleira áhugavert